Gigi Hadid fetar í fótspor systur sinnar Ritstjórn skrifar 29. janúar 2016 16:45 Gigi og Zayn í myndbandinu.
Fyrirsætan Gigi Hadid, fetar í fótspor systur sinnar, en hún leikur í nýju myndbandi kærasta síns, Zayn Malik við lagið Pillow Talk, sem kom út í morgun. Systir Gigi, fyrirsætan Bella Hadid, fór einmitt með hlutverk í myndbandi kærasta síns, The Weeknd við lagið In The Night. Zayn, var eins og einhverjir vita, í einni vinsælustu strákasveit heims, One Direction, en sagði skilið svið sveitina á miðju tónleikaferðalagi þann 25.mars í fyrra. Zayn virðist ætla að notfæra sér þessa dagsetningu enn frekar, en fyrsta sólóplatan hans, Mind of Mine kemur út 25.mars 2016. Misjafnar skoðanir eru meðal fólks hvort aðkoma Gigi að myndbandinu hafi verið gáfuleg, þar sem hún er ein vinsælasta fyrirsæta heims í dag og hvort myndbandið fái einungis athygli út á hana. Þykir þetta vera í mótsögn við það sem Zayn hefur sagt í viðtölum undanfarið, þar sem hann hefur talað um að þess plata eigi að snúast um hann og hans tónlist. Það er hinsvegar önnur saga, því lagið Pillowtalk er alls ekki allra. Dæmi nú hver fyrir sig, en myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Glamour Fegurð Mest lesið Tyra Banks mun kenna við Stanford háskólann Glamour SKAM stjarna í tískuþætti í W Magazine Glamour H&M opnar 430 nýjar búðir á árinu Glamour Melania Trump klæddist Ralph Lauren á kosningakvöldinu Glamour Ariana Grande fyrir MAC Glamour Heimsókn til Söruh Jessicu Parker Glamour Lady Gaga leikur í Super Bowl auglýsingu Tiffany & Co Glamour Föstudagslag Glamour Glamour Chanel opnar spa í París Glamour Kylie litar sig aftur dökkhærða Glamour