Dönsk þrenna þegar Eyjamenn lögðu Ólsara Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. janúar 2016 15:23 Avni Pepa skoraði þriðja mark ÍBV. vísir/valli
Það verður ÍBV sem mætir KR í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins en Eyjamenn tryggðu sér sigur í riðli 2 með 2-4 sigri á Víkingi Ólafsvík í Akraneshöllinni í dag. Mikkel Maigaard Jakobsen, sem er til reynslu hjá ÍBV þessa dagana, var í aðalhlutverki í leiknum í dag en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk. Jakobsen kom Eyjamönnum yfir á 16. mínútu og Daninn bætti öðru marki við fjórum mínútum síðar. Kenan Turudija minnkaði muninn í 1-2 á 41. mínútu en albanski varnarmaðurinn Avni Pepa kom ÍBV í 1-3 með marki á lokamínútu fyrri hálfleiks. Jakobsen fullkomnaði svo þrennuna þegar hann kom ÍBV í 1-4 á 74. mínútu. Loic Mbang Ondo lagaði stöðuna fyrir Ólsara undir lokin en það breytti engu um úrslitin. Lokatölur 2-4, ÍBV í vil. ÍBV fékk sjö stig í riðli 2, jafnmörg og Stjarnan, en markatala Eyjamanna er betri. Víkingur tapaði hins vegar öllum þremur leikjum sínum í riðlinum. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar af úrslit.net.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir KR í úrslit Fótbolta.net mótsins KR er komið í úrslit í Fótbolta.net mótinu eftir 2-4 sigur á ÍA í Akraneshöllinni í dag. 23. janúar 2016 12:57 Mest lesið „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum Handbolti Fleiri fréttir Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Sjá meira
KR í úrslit Fótbolta.net mótsins KR er komið í úrslit í Fótbolta.net mótinu eftir 2-4 sigur á ÍA í Akraneshöllinni í dag. 23. janúar 2016 12:57