Menning

Með leitandi auga og alltaf myndavél við höndina

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Ég hef verið heilluð af ljósmyndun frá því ég var krakki,” segir Erna Ýr.
„Ég hef verið heilluð af ljósmyndun frá því ég var krakki,” segir Erna Ýr. Vísir/Ernir
 Ólíkur uppruni, brotthætt byggð, leikur barna, staðalímyndir, kaupmennirnir í miðbænum og ádeilusögur eru meðal myndefna á ljósmyndasýningu sem opnuð er í dag í Nesstofu á Seltjarnarnesi klukkan 15. Þetta eru myndir þeirra nema sem nú eru að útskrifast úr Ljósmyndaskólanum á Fiskislóð eftir fimm anna nám. Ein þeirra er Erna Guðjónsdóttir.

„Þetta er alveg stórbrotin sýning enda er Ljósmyndaskólinn dásemdarstofnun,“ segir hún glaðlega. Verk hennar á sýningunni er 21 mynda sería sem nefnist Mæðgur. „Mæðurnar eiga það allar sameiginlegt að hafa eignast dæturnar 17 ára eða yngri,“ upplýsir hún.

Erna kveðst hafa verið heilluð af ljósmyndun frá því hún var krakki.

„Ég hef alltaf verið með myndavél við höndina og er með þetta leitandi auga sem þarf. Er búin að prófa að fara í háskólann en fann mig ekki þar svo ég ákvað að kíla á eitthvað sem ég ætti heima í.“

  Sigríður Ólafsdóttir, betur þekkt sem Sissa, stofnaði Ljósmyndaskólann 1997, fyrst í námskeiðaformi en síðan sem heilsdagsskóla. 

„Sissa rekur skólann og kennir og fær til sín einvalalið, alla helstu sérfræðinga landsins sem stundakennara,“ segir Erna Ýr.

„Maður á að geta verið fullgildur meðlimur í samfélagi ljósmyndara þegar náminu lýkur. Það er vissulega baráttuheimur en fólk velur samt að vinna við ólíka hluti.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.