Aron mættur aftur til æfinga hjá Werder Bremen eftir erfið meiðsli Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. febrúar 2016 10:00 Aron Jóhannsson þarf að komast aftur út á völlinn til að hjálpa Brimarborgurum. vísir/getty
Aron Jóhannsson, bandaríski landsliðsframherjinn úr Grafarvoginum, sneri aftur til æfinga hjá þýska liðinu Werder Bremen á þriðjudaginn eftir margra vikna hlé. Aron hefur verið meiddur í mjöðm og fór í aðgerð í Berlín fyrr í haust. Hann hefur ekki getað æft því rót vandans liggur í náranum. „Ég er enn meiddur og get ekki gert mikið. Ég er nú í meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurum og engu öðru. Þeir vita ekki nákvæmlega hversu langan tíma þetta mun taka hjá mér og það er kannski það sem er erfiðast við þessi meiðsli,“ sagði Aron í viðtali við Vísi í janúar. Aron var orðinn fastamaður í liði Bremen áður en hann meiddist, en framherjinn öflugi spilaði fimm leiki í byrjunarliðinu í röð og skoraði tvö mörk áður en hann meiddist í lok september á síðasta ári. „Mér líður mun betur en áður og ég get gert meira sem er jákvætt. Ég mun bara bæta álagið á næstu vikum til að koma mér aftur í form. Ég er loksins komnin aftur í gang,“ segir Aron á heimasíðu Werder Bremen. Liðið þarf svo sannarlega á Aroni að halda fyrr en seinna því það er í 16. sæti af 18 liðum eftir 19 umferðir með aðeins 19 stig og í harðri fallbaráttu.
Þýski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Sjá meira