KA að kaupa Almarr frá KR Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. febrúar 2016 12:46 Almarr í baráttunni gegn Fylki á síðustu leikíð. vísir/anton brink
KA er búið að ganga frá kaupum á Almarri Ormarssyni, leikmanni Pepsi-deildar liðs KR, en hann verður kynntur til leiks á blaðamannafundi fyrir norðan í dag klukkan 17.00. Þetta kemur fram á Fótbolti.net, en Almarr, sem hefur spilað undanfarin tvö ár með KR í Pepsi-deildinni var áður á mála hjá Fram. KA þarf að kaupa Almarr frá vestubæjarliðinu þar sem hann er með samning við KR sem gildir út komandi tímabil. Almarr þekkir vel til hjá KA, en hann er fæddur og uppalinn á Akureyri og spilaði með liðinu í 1. deildinni frá 2005-2007 áður en frændi hans Þorvaldur Örlygsson fékk hann til sín í Fram. Almarr kom við sögu í öllum 22 leikjum KR í deildinni í fyrra og skoraði þrjú mörk, en á tveimur árum spilaði hann 39 deildar leiki og tíu bikarleiki fyrir KR og skoraði í þeim níu mörk. Hann varð bikarmeistari með KR 2014 þegar liðið vann Keflavík, 2-1, í úrslitaleik og einnig árið áður með Fram þegar það bar sigurorð af Stjörnunni eftir vítaspyrnukeppni. KA-menn ætla sér svo sannarlega upp úr 1. deildinni í sumar. Liðið er nú þegar búið að fá til sín Hallgrím Mar Steingrímsson frá Víkingi en er reyndar búið að missa U21 árs landsliðsmanninn Ævar Inga Jóhannesson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru eru manneskjur en ekki skotmörk“ Enski boltinn Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Sjá meira