Mikkel Maigaard hélt upp á nýja samninginn með því að afgreiða KR í kvöld | Myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2016 21:55 Mikkel Maigaard Jakobsen fagnar marki sínu. Vísir/Ernir
Mikkel Maigaard Jakobsen, nýr danskur framherji Eyjamanna, skoraði bæði mörk ÍBV í 2-1 sigri á KR í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins í Egilshöllinni í kvöld.Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum og náði þessum myndum hér fyrir ofan. Bæði lið enduðu með tíu menn á vellinum en Eyjamenn voru manni færri frá 68. mínútu leiksins þegar Pablo Oshan Punyed Dubon fékk sitt annað gula spjald. KR-ingurinn Valtýr Már Michaelsson var síðan rekinn af velli átta mínútum fyrir leikslok. Mikkel Maigaard Jakobsen er nýbúinn að ganga frá tveggja ára samningi við lið ÍBV og sýndi það í kvöld hvernig á að halda upp á nýjan samning. Hann skoraði bæði mörkin sín í fyrri hálfleiknum. Fyrra markið skoraði Mikkel Maigaard með frábæru skoti á 25. mínútu og átta mínútum síðar var hann búinn að skora öðru sinni framhjá Stefáni Loga Magnússyni í marki KR-liðsins. Mikkel Maigaard Jakobsen spilaði tvo leiki með ÍBV í Fótbolta.net mótinu og skoraði þeim fimm mörk en hann var með þrennu í sigri á Víkingi úr Ólafsvík. Guðmundur Andri Tryggvason, sonur Eyjamannsins Tryggva Guðmundssonar, kom inná sem varamaður hjá KR í fyrri hálfleik þeghar Óskar Örn Hauksson fór meiddur af velli og það var síðan Guðmundur Andri sem skoraði eina mark KR-liðsins á 78. mínútu leiksins. Það er hægt að lesa allt um leikinn á síðu fótbolta.net en upplýsingarnar hér fyrir ofan eru fengnar þaðan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Lærisveinar Arons úr leik eftir tap í framlengdum leik Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti Segir að hrokinn hafi orðið Frökkum að falli Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Fleiri fréttir Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Sjá meira