Mun síðasti maður læsa í Þorlákshöfn? | Allir á leið í Höllina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2016 15:00 Stuðningsmenn Þórsliðsins. Vísir/Ernir
Þór úr Þorlákshöfn mætir KR í úrslitaleik Poweradebikars karla í körfubolta í Laugardalshöllinni á laugardaginn kemur og auðvitað er mikil eftirvænting í bænum enda fyrsti bikarúrslitaleikur félagsins. Það má búast við mjög góðri mætingu á leikinn úr Þorlákshöfn enda vill örugglega enginn bæjarbúa missa af þessari sögulegu stund. Íþróttamiðstöðin ætlar sem dæmi að loka snemma á laugardaginn og skýringin er einföld: „Leikurinn fer fram í Laugardalshöll kl. 16:30. Af þeim sökum mun Íþróttamiðstöðin loka kl. 14:30 því að við ætlum öll á völlinn," segir í frétt á hafnarfrettir.is. Nágrannar Þorlákshafnarbúa úr Hveragerði hafa tvisvar sinnum komist í Laugardalshöllina (2001 og 2007) og settu þá mikinn svip á stúkuna. Græni liturinn verður örugglega áberandi í Höllinni og þá er pottþétt að Græni drekinn muni halda upp í stemmningunni meðal síns fólks. Þetta verður þó ekki fyrsti úrslitaleikur Þórsliðsins á tímabilinu því Þór tapaði fyrir Stjörnunni í úrslitaleik Lengjubikars karla í byrjun október en sá leikur fór fram í Iðu á Selfossi. Þór hefur líka spilað til úrslita á Íslandsmótinu en liðið tapaði 3-1 fyrir Grindavík í lokaúrslitum árið 2012. Þórsliðið er hinsvegar í fyrsta sinn í Laugardalshöllinni og mætir þar Íslandsmeisturum KR.Tryggjum okkur miða á bikarúrslitin :) og grænan bolKörfuknattleikslið Þórs markaði spor í sögu félagsins og bæjarins...Posted by Þór Þorlákshöfn on 3. febrúar 2016
Dominos-deild karla Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira