Umfjöllun og viðtöl: KR - FSu 102-82 | KR deildarmeistari en bikarinn bíður Árni Jóhannsson í DHL-höllinni skrifar 6. mars 2016 21:30 Brynjar Þór Björnsson og Helgi Már Magnússon. Vísir/Hanna
KR-ingar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í Dominos deild karla í körfubolta fyrr í kvöld. Þeir lögðu FSu að velli í leik sem var spennandi í fyrri hálfleik en eftir að KR-ingar þrýstu örlítið meira á bensíngjöfina í þeim seinni var aldrei spurning um hvernig leikurinn myndi enda. Lokatölur 102-80 og KR verður með heimaleikjarétt út úrslitakeppnina. Gestirnir frá Selfossi mættu mun beittari til leiks þegar þeir mættu Íslandsmeisturum KR-inga í kvöld í DHL-höllinni í Reykjavík. Liðin skiptust á að skora körfur í fyrsta leikhluta en þegar honum var lokið var það lið FSu sem hafði forskotið 23-25. Leikur KR-inga var mjög kærulaus á báðum endum vallarins og nýttu Selfyssingar sér það mjög vel. Gestirnir létu kné fylgja kviði í öðrum leikhluta og náðu mest sex stiga forystu og voru að ná fínum fléttum sem opnuðu varnir heimamanna sem framan af öðrum leikhluta sýndu sama kæruleysi og hafði verið í þeim fyrsta. Þegar um fjórar mínútur lifðu af fyrri hálfleik hristu heimamenn af sér slenið og náðu að keyra upp hraðann. Þegar flautan gall var KR komið með forskotið en 11-0 sprettur skilaði þeim sex stigum í forskot í hálfleik 52-66. Chris Woods fór fyrir sínum mönnum og var með 19 stig fyrir FSu en Michael Craion var með 16 stig fyrir heimamenn. KR-ingar hófu seinni hálfleikinn af krafti og voru áður en langt var liðið af honum komnir með 12 stig í forskot og fljótlega var ljóst í hvað stefndi í DHL-höllinni. KR er með meun betra lið en FSu eins og taflan sýnir. FSu náði að sýna ansi fína spilkafla í seinni hálfleik en heimamenn voru með völdin og héldu þeim ávallt frá sér með forskoti sem var tveggja stafa. Þriðja leikhluta lauk og var forskot KR komið í 14 stig 79-65. Það var í raun og veru formsatriði að klára leikinn því forskot KR var aldrei í hættu og þrátt fyrir að FSu næði góðum sóknum, þá áttu KR-ingar alltaf svar til baka þannig að Selfyssingum var aldrei hleypt nóg nálægt til að þeir ættu séns. Undir lok leiks fengu yngri leikmenn að spreyta sig og er sú reynsla dýrmæt. Leiknum lauk með tölunum 102-80 og áttu KR-ingar sigurinn fyllilega skilið. Stigahæstur KR-inga var Michael Craion með 29 stig og fjórtán fráköst. Pavel Ermolinski náði sér síðan í myndarlega þrennu en hann skoraði 12 stig, náði í 11 fráköst og gaf 12 stoðsendingar og fer hann því á vegginn fræga í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport. Chris Woods skoraði 29 stig fyrir FSu ásamt því að hreinsa glerið með 13 fráköstum. Það er gaman að segja frá því að sex leikmenn FSu skoruðu meira en 10 stig í leiknum en þeir sýndu í kvöld að þeir geta spilað flottan körfubolta en mættu bara ofjörlum sínum í kvöld. Það vakti athygli að bikarinn sem KR hlýtur fyrir deildarmeistaratignina var hvergi sjáanlegur en það hefði verið gaman fyrir aðdáendur KR að sjá hann fara á loft á heimavelli. Þeir verða því að gera sér ferð upp í Breiðholt á fimmtudaginn næstkomandi til að berja athöfnina augum.Tölfræði leiks: KR-FSu 102-82 (23-25, 29-19, 27-21, 23-17) KR: Michael Craion 29/14 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 15, Helgi Már Magnússon 13, Björn Kristjánsson 12/5 fráköst, Darri Hilmarsson 12, Pavel Ermolinskij 10/11 fráköst/11 stoðsendingar, Snorri Hrafnkelsson 7/4 fráköst, Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 2, Arnór Hermannsson 2, Darri Freyr Atlason 0, Vilhjálmur Kári Jensson 0, Ólafur Þorri Sigurjónsson 0. FSu: Christopher Woods 27/13 fráköst/5 stolnir, Gunnar Ingi Harðarson 14/6 fráköst/12 stoðsendingar, Bjarni Geir Gunnarsson 12/8 fráköst, Þórarinn Friðriksson 10, Maciej Klimaszewski 8/4 fráköst, Geir Elías Úlfur Helgason 5, Haukur Hreinsson 3, Svavar Ingi Stefánsson 3, Arnþór Tryggvason 0, Jörundur Snær Hjartarson 0.Finnur Freyr: Góður stöðugleiki hjá KR í gegnum árin Þjálfari KR var sammála blaðamanni um að liðið hans hafi ekki spilað fyrri hálfleikinn af þeim krafti sem þurfti á móti FSu. „Við hefðum getað spilað þetta af ögn meiri krafti en við vitum hvað er handan við hornið. Það er kannski erfitt að gíra sig upp í svona leiki, með fullri virðingu fyrir liði FSu. Þetta er lið sem við erum töluvert betri en og þannig er það bara.“ Finnur var því næst spurður hvort það væri ekki hin fínasta tilfinning að vinna annan bikarinn af þremur sem í boði eru og er þá átt við deildarmeistaratitilinn. „Jú og þetta er góður titill, KR er að vinna hann þriðja árið í röð sem sýnir stöðugleika hjá liðinu þrátt fyrir áföll eins og meiðsli Pavels og Helga fyrir jól. Við erum samt sem áður að ná að halda út deildina þó við töpum fleiri leikjum í ár en við höfum gert undanfarin tvö ár. Að sama skapi erum við að tryggja þetta með einn leik til góða og ég er mjög ánægður með það.“ Finnur gat leyft sér að setja yngri leikmenn liðsins inn á í lok leiks og var hann spurður hvort það væri ekki mikilvægt fyrir komandi úrslitakeppni og var svo í framhaldinu inntur eftir því hvort tækifæri væri til að hvíla menn fyrir átökin í mars og apríl. „Auðvitað er mikilvægt að geta leyft yngir leikmönnum að spila og þurfa þeir að halda áfram að leggja sig fram um að verða betri. Það er þeirra verkefni að slá leikmennina sem eru betri út og þeir fá það ekki gefins en ef þeir halda áfram á sömu braut þá er framtíðin björt.“ „Við erum meira að hugsa um að ná æfingunni fyrir úrslitakeppnina heldur en að hvíla leikmenn. Við þurfum að skoða ýmsa hluti eftir að hafa misst Ægi út, sérstaklega varnarlega og notum þennan leik til að gera okkur klára. Við nálgumst þess vegna leikinn á fimmtudaginn af krafti og viljum fara í úrslitakeppnina á góðu nótunum og með allt í botni.“Olson: Erum að horfa á stærri myndina „Við spiluðum á móti góðu liði sem er að gera sig klárt fyrir úrslitakeppnina og þeir voru að klára deildarmeistaratitilinn“, sagði þjálfari FSu þegar hann var beðinn um að leggja mat á leik sinna manna við KR fyrr í kvöld. Hann hélt áfram: „Við vonuðumst til að ná þeim í leik þar sem einbeiting þeirra var ekki alveg til staðar og tókst það í fyrri hálfleik. Við unnum fyrsta leikhluta og héldum í við þá í öðrum leikhluta. Þetta var ekki 20 stiga leikur fyrr en seint í leiknum og mínir menn spiluðu mjög vel í kvöld. Þeir börðust vel allan leikinn en mættu kannski ofjörlum sínum líkamlega en fyrir leik ræddum við um að þeir þyrftu að mæta til leiks af miklum krafti sem þeir og gerðu.“ „Mitt lið er fullt af ungum leikmönnum sem eru með fókusinn á stærri hluti en þetta tímabil þannig að við erum að láta okkar menn vita að þeir eigi að mæta í alla leiki eins. Þó þeir hafi tapað með 20 í kvöld þá sýndu þeir flotta takta á tímabili í kvöld og þeir létu finna fyrir sér. Ég er ánægður með mína menn í kvöld.“ Olson var spurður að því hvort erfitt hafi verið að gíra menn upp í leikinn í kvöld verandi fallnir úr deildinni. „Nei það var ekki erfitt, það er tvennt sem þarf að líta á. Annars vegar að þetta er körfubolta akademía og líta menn á stærri myndina, einhverjir stefna út fyrir landsteinana og vera atvinnumenn. Mesta einbeitingin er á þeim hluta og þó við séum að tapa leikjum þá eru leikmenn hvattir til að gera hlutina á réttan hátt.“ „Hins vegar erum við með gott undir 20 ára liði sem er að spila í úrslitakeppninni og fá þeir strákar tækifæri að spila við eldri leikmenn í undirbúningi fyrir þá keppni. Það er þannig ekki erfitt að mótivera mína menn, ég hugsa að strákarnir hafi ekki spilað af svona miklum krafti í nokkra mánuði.“ „Ég lít á seinasta leikinn sem tækifæri fyrir strákana að spila og ná í sigur á heimavelli. Við mætum Tindastól sem er gott lið og er að gera sig klára fyrir úrslitakeppni og eru jafnvel að prófa nýja hluti, það er stór leikur fyrir okkur og okkur langar að ná í sigur.“Bein lýsing: KR - FSuTweets by @VisirKarfa2
Dominos-deild karla Mest lesið Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í Fótbolti Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Fljótasti Íslendingurinn er frá Hong Kong: „Meira en velkominn í landslið Íslands“ Sport Björgvin Karl með loforð eftir vonbrigði helgarinnar Sport Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn „Vinsamlegast látið hann í friði“ Fótbolti Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Heilsan ástæða þess að Árni lætur af störfum Betur fór en á horfðist hjá Martin sem virtist illa meiddur „Hef meiri áhyggjur af þessu með Kára“ Kallaði Giannis barn eftir að hann neitaði að taka í höndina á honum Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Fullkominn og frábær leikur Tryggvi dugði ekki Teitur og Sævar fóru fögrum orðum um Kane í Körfuboltakvöldi Martin með tvöfalda tvennu í sigri á toppliðinu „Þegar svona gír er á okkur þá erum við fjandi góðir“ Uppgjörið: Grindavík - Þór Þ. 99-70 | Grindvíkingar svöruðu kallinu Grindavík fær 35 þúsund króna sekt vegna háttsemi Kane Sendu Bronny James niður í G-deild og allir miðarnir seldust upp Fyrstir í NBA í níu ár til að vinna tíu fyrstu leiki sína Jónína með þrennu og Ármannsstelpur ósigraðar á toppnum Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Álftanes sá til þess að Haukar eru enn án sigurs Sjá meira
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“