Aserbaídsjan tilkynnir einhliða vopnahlé Samúel Karl Ólason skrifar 3. apríl 2016 10:44 Aserbaídsjan segir að þyrla þeirra hafi verið skotin niður. Vísir/AFP
Yfirvöld í Aserbaídsjan tilkynntu í dag einhliða vopnahlé í Nagorny Karabakh héraðinu þar í landi. Átök blossuðu upp þar í gær og hafa minnst 30 hermenn fallið auk almennra borgara. Hersveitir Armena segja þó að átökin geisi þar enn. Héraðið hefur verið í höndum aðskilnaðarsinna sem rekja uppruna sinn til Armeníu frá árinu 1994. Stjórn þeirra hefur aldrei verið viðurkennd af alþjóðasamfélaginu en þeir hafa verið studdir af Armeníu. Bæði efnahagslega og hernaðarlega. Í tilkynningu frá Varnarmálaráðuneyti Aserbaídsjan segir að yfirvöld hafi ákvæðið að hætta átökum. Hins vegar er varað við því að hætti sveitir Armena ekki að ögra Aserbaídsjan verði þeir reknir með valdi úr héraðinu. Talsmaður aðskilnaðarsinnanna segir AFP fréttaveitunni hins vegar að árásir Aserbaídsjan standi enn yfir. Þungir bardagar geisi nú á víglínunum. Yfirvöld í bæði Rússlandi og Bandaríkjunum hafa kallað eftir því að bardagar verði stöðvaðir. Báðar fylkingar eru vel vopnaðar og segir á vef BBC að nágrannar ríkjanna hafi lengi óttast að vopnahléið frá 1994 yrði rofið og að ástandið myndi verða óstjórnanlegt. Í raun hófust átökin á níunda áratuginum og urðu þau að stríði við fall Sovíetríkjanna. Um 30 þúsund manns féllu í átökunum, sem enduðu með vopnahléi árið 1994.
Armenía Aserbaídsjan Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Fleiri fréttir Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Sjá meira