Lífið

Kim og Kanye dvelja á 101

Bjarki Ármannsson skrifar
Stjörnuparið Kim Kardashian og Kanye West dvaldi aðeins skamma stund á 101 hóteli áður en þau héldu út úr húsi nú í dag.

Í myndskeiði sem einn úr fylgdarliði þeirra deildi á Snapchat fyrir stuttu, má sjá að talsverður hópur fólks var samankominn fyrir utan hótelið þegar þau héldu út.

Skötuhjúin lentu á Keflavíkurflugvelli í morgun en þau eru komin til landsins í þeim erindagjörðum að taka upp tónlistarmyndband við eitt laganna á nýrri plötu West.

Kourtney, ein systra Kim, er með í för ásamt fjölskylduvininum Jonathan Cheban, sem setti myndskeiðið af þeim við hótelið inn á Snapchat. Myndskeiðið má sjá hér að ofan. Hér fyrir neðan má einnig sjá myndband af Kim og Kanye hér á landi sem deilt var á Facebook.

Þau Kim og Kanye eru óum­deilan­lega einir frægustu einstaklingar og hjón heims. Greint var frá því fyrir nokkrum vikum að þau væru væntanleg til landsins en upphaflega þurfti að fresta ferð þeirra vegna veðurs.

Kim taking a selfie with a fan in Reykjavik, Iceland today pic.twitter.com/nmsFalE7yo

— Kardashian Pedia (@Kardashianpedia) April 17, 2016

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.