Menning

Var valin besta leikkona árgangsins á útskriftarathöfninni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Unnur átti ekki von á að hljóta viðurkenninguna.
Unnur átti ekki von á að hljóta viðurkenninguna. myndir/aðsendar
„Ég bjóst alls ekki við þessu. Þetta var hundrað manna árgangur og ótrúlega margir flottir leikarar sem hafa fengið rosalega góða þjálfun,“ segir Unnur Eggertsdóttir í samtali við Vísi.

Í dag útskrifaðist Unnur úr The American Academy of Dramatic Arts í New York en á útskriftarathöfninni hlaut hún viðurkenningu sem besta leikkona árgangsins. Ekki ómerkari leikurum en Spencer Tracy og Robert Redford hefur hlotnast þessi sami heiður. „Nú bý ég allavega yfir hinum fullkomna „icebreaker“ ef ég hitti Robert Redford.“

Unnur fær atvinnuleyfi í Bandaríkjunum til eins árs sem hún getur nýtt til að vinna í leiklistargeiranum. Það sem tekur við eru prufur en hún er til að mynda á leið í tvær slíkar í vikunni. „Það er mikið lagt upp úr því í skólanum hvernig þú átt að bera þig að í prufum og í raun heilt námskeið sem kennir þetta. Hvernig þú átt að bera þig og sýna þínar bestu hliðar. Hér í borginni eru stanslausar prufur sem ég mun sækja stíft.“

„Draumurinn er að geta hoppað á milli kvikmynda, sjónvarps og leikhúss,“ segir Unnur en bætir við að hennar grunnur liggi meira í leikhúsi. „Að leika á sviði er svo ofboðslega spennandi. Þú færð svo mikið frá áhorfendunum um leið og allt ferlið við að setja upp sýninguna er svo gefandi.“

„Það verður svolítið skrítin breyting. Námið hefur verið mjög strangt og skóladagurinn frá morgni til kvölds. Allt í einu er það ekki svo. Það er rosalega auðvelt að detta í leti þegar enginn er til að halda í hendina á manni lengur,“ segir Unnur. Hún bætir því við að mikilvægt sé að vera með sjálfsaga, sækja fleiri tíma, skrifa verk sjálfur og halda alltaf áfram að læra.

Hingað til hefur Los Angeles haft þann stimpil á sér að vera mun meiri kvimynda- og sjónvarpsborg á meðan sviðslistin hefur að miklu leiti verið í New York. Unnur segir þetta vera smám saman að breytast. „Sem stendur vil ég vera áfram hérna en aðalatriðið er að taka þátt í einhverju sem veitir manni eitthvað sem leikari. Og ekki væri verra ef það borgar námslánin.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.