Kristinn Jakobsson gerir sitt í að reyna að fjölga dómurum fyrir norðan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2016 22:00 Kristinn Jakobsson. Vísir/Daníel
Kristinn Jakobsson, fyrrum FIFA-dómari og einn besti knattspyrnudómari Íslands frá upphafi, verður á ferðinni fyrir norðan um næstu helgi og markmiðið er að fjölga knattspyrnudómurum á þessum hluta landsins. Kristinn Jakobsson er nú formaður dómaranefndar KSÍ en hann mun á sunnudaginn heimsækja Norðurland, halda héraðsdómaranámskeið og vera með kynningu á breyttum áherslum á knattspyrnulögunum. Unglingadómari hefur réttindi til þessa að dæma upp í 4. flokk og vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. Héraðsdómari hefur aftur á móti rétt til þess að starfa sem dómari og aðstoðardómari upp í meistaraflokk. Boðið verður upp á héraðsdómaranámskeið í Símey á Akureyri klukkan tíu á sunnudaginn eins og fram kemur í frétt á heimasíðu KSÍ en þar eru félögin á svæðinu beðin um að kynna námskeiðið vel innan sinna raða. Sama dag kl. 14:00 verður verður kynning á breytingum á knattspyrnulögunum, sem eru verulegar að þessu sinni. Félög í Pepsi-deild og 1. deild karla eru skyldug samkvæmt leyfiskerfinu að mæta á fund vegna dómaramála á ári hverju og er þessi kjörið tækifæri til að félögin geti uppfyllt það ákvæði. Knattspyrnusambandið hvetur öll félög á Norðurlandi eru hvött til þess að senda fulltrúa á kynninguna. Krsitinn Jakobsson dæmdi í efstu deild í 21 ár og samtals 277 leiki. Hann var kosinn besti dómari Pepsi-deildar karla á sínum síðasta tímabili og fékk þau verðlaun í tíunda sinn.Dagskráin á sunnudaginn 17. apríl: 10:00 Símey. Þórsstíg 4 Akureyri. Héraðsdómaranámskeið. 14:00 Símey. Þórsstíg 4 Akureyri. Breytingar á knattspyrnulögunum.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Handbolti Fleiri fréttir 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Sjá meira