Alfreð með metmark í sigri Augsburg | Sjáðu markið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. apríl 2016 15:30
Það tók Alfreð Finnbogason ekki nema 45 sekúndur að koma Augsburg yfir gegn Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Alfreð fékk þá sendingu inn fyrir vörn Wolfsburg frá Halil Altintop og setti boltann af öryggi milli fóta Diego Benaglio í marki heimamanna. Þetta var þriðja mark Alfreðs í jafn mörgum leikjum en hann hefur alls skorað sex mörk fyrir Augsburg frá því hann kom til félagsins. Markið var sögulegt því aldrei hefur leikmaður Augsburg skorað jafn snemma í leik í þýsku deildinni. Þetta var jafnframt fljótasta mark tímabilsins. Altintop kom Augsburg í 0-2 á 57. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti sem Benaglio varði frá Alfreð. Nokkrum mínútum síðar fékk Alfreð svo upplagt tækifæri til að skora sitt annað mark. Íslenski landsliðsframherjinn slapp þá inn fyrir vörn Wolfsburg en Benaglio sá við honum og varði. Með sigrinum komst Augsburg upp í 12. sæti deildarinnar en liðið er nú fimm stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Bayern München styrkti stöðu sína á toppnum með 0-2 sigri á Herthu Berlin á útivelli og Borussia Dortmund vann öruggan 0-3 útisigur á Stuttgart.Úrslit dagsins: Wolfsburg 0-2 Augsburg Hertha Berlin 0-3 Bayern München Stuttgart 0-3 Dortmund Ingolstadt 2-2 Hannover Köln 4-1 DarmstadtWolfsburg 0-1 Augsburg Wolfsburg 0-2 Augsburg Alfreð nálægt því að skora sitt annað mark
Þýski boltinn Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira