Dortmund á enn möguleika á titlinum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2016 15:28 Leikmenn Dortmund skoruðu fimm gegn Wolfsburg. vísir/getty
Borussia Dortmund á enn möguleika á að vinna þýska meistaratitilinn í fótbolta en liðið vann stórsigur á Wolfsburg, 5-1, í dag. Á sama tíma gerði Bayern München 1-1 jafntefli við Borussia Mönchengladbach á heimavelli. Fimm stigum munar nú á liðunum þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildinni. Bayern ætti þó að nægja eitt stig í viðbót til að tryggja sér þýska meistaratitilinn fjórða árið í röð þar sem markatala liðsins er mun betri en hjá Dortmund. Með sigri í næsta leik gegn Ingolstadt gulltryggir Bayern sér titilinn, burtséð frá því hvað Dortmund gerir gegn Frankfurt. Thomas Müller kom Bayern yfir gegn Mönchengladbach á 6. mínútu en Andre Hahn jafnaði metin þegar 18 mínútur voru til leiksloka. Pierre-Emerick Aubameyang skoraði tvö mörk fyrir Dortmund gegn Wolfsburg og þeir Shinji Kagawa, Adrian Ramos og Marco Reus sitt markið hver.Úrslit dagsins: Dortmund 5-1 Wolfsburg Bayern 1-1 Mönchengladbach Darmstadt 1-2 Frankfurt Hannover 1-3 Schalke Hoffenheim 2-1 Ingolstadt Mainz 0-0 Hamburg
Þýski boltinn Mest lesið Ætlar að hella í sig þegar Stephen Curry hættir Körfubolti Karius mættur í þýsku B-deildina Fótbolti Umdeildur arnatemjari rekinn fyrir að birta typpamyndir Fótbolti Danir skoruðu 47 mörk í fyrsta leik sínum á HM Handbolti Ásdís Karen orðin samherji Hildar í Madríd Fótbolti „Fannst við eiga vinna leikinn” Körfubolti „Hefur tekið styttri tíma en ég bjóst við“ Körfubolti Njarðvík og Stjarnan með góða útisigra Körfubolti Freyr gaf KSÍ tveggja sólarhringa frest: „Ég stóð bara við mín orð“ Fótbolti Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Íslenski boltinn Fleiri fréttir Karius mættur í þýsku B-deildina Þrettánda jafnteflið hjá Juventus Ásdís Karen orðin samherji Hildar í Madríd Malen mættur til Villa Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Fyrrum fyrirliði og þjálfari Man City látinn Segja að Zubimendi fari til Arsenal í sumar Arteta um ógeðslegu skilaboðin: „Verður að draga línu í sandinn“ Freyr gaf KSÍ tveggja sólarhringa frest: „Ég stóð bara við mín orð“ Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Sven-Göran skildi eftir sig skuldir upp á einn og hálfan milljarð Engin stig tekin af ensku liðunum Umdeildur arnatemjari rekinn fyrir að birta typpamyndir Tímabilinu líklega lokið hjá Jesus Atli á leið til Víkings Guardiola skilinn eftir þrjátíu ára samband Freyr stígur inn í fótboltasjúkt samfélag: „Hefur áhrif á allan bæinn hvernig gengur“ Stoltur og glaður Freyr fékk óumbeðna mynd frá Birki Fyrirliði Man United sendi Jóa Berg og fjölskyldu fallega gjöf Á morgun opinberar enska úrvalsdeildin hvaða liðum verður refsað Orri Steinn kom inn í lokin í sigri á Gula kafbátnum Albert spilaði fyrri hálfleik í tapi Fiorentina Valdi norsku B-deildina fram yfir Víking Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Conte vill fá Garnacho í staðinn fyrir Kvaratskhelia Littler hunsaði Beckham óvart „Þjálfarinn sem að lokum tekur ákvörðunina um það hver okkar spilar“ Sjá meira