Karen Nóa: "Við erum ekki í þessari deild til þess að leika okkur“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. maí 2016 21:09 Fyrirliði Þórs/KA segir að stígandi sé í leik liðsins eftir erfiða byrjun. „
Við komum hingað til að taka þrjú stigin en fyrirfram hefði maður kannski sætt sig við eitt stig. Maður vill samt alltaf stigin þrjú, hvort sem það er heima eða úti,“ sagði Karen Nóadóttir, fyrirliði Þórs/KA ansi rám eftir að hafa öskrað sitt lið áfram í kvöld þegar Þór/KA gerði jafntefli á útivelli gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Breiðabliks.Mjög hvasst var á Kópavogsvelli í kvöld og telur Karen að það hafi haft áhrif á spilamennsku leikmanna í kvöld. „Það var mjög hvasst og þetta var örugglega ekki fallegasti fótboltaleikurinn í kvöld á að horfa,“ segir Karen en bendir á að vindurinn hafi ekki gert upp á milli liða, hann hafi haft jöfn áhrif á bæði lið. Norðanstúlkur geta vel við unað með fjögur stig eftir tvær ferðir á erfiðustu útivelli landsins, gegn Stjörnunni og Blikum og segir Karen að liðið sé nú farið að bæta upp fyrir slæma frammistöðu í fyrsta leik liðsins. „ Við vorum eins og algjörir aular í fyrsta leiknum gegn Stjörnunni en nú erum við að sýna öllum það og svara fyrir það. Við erum ekki í þessari deild til þess að leika okkur og sparka með vinstri. Við ætlum okkur að ná árangri,“ segir Karen nokkuð sátt eftir leik kvöldsins.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hættur með landsliðið Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fleiri fréttir Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Sjá meira