„Já, sumarið er komið. Fyrsti túristi þessa árs gripinn með buxurnar niðrum sig á heimreiðinni. Hvar á þetta fólk eiginlega að kúka?“ spyr Helga.
Keyrði fram á túrista með allt niðrum sig
Hún var að keyra frá heimili sínu snemma morguns. Og þá var hann á miðri heimreiðinni, eða úti í vegakanti þegar Helga keyrði fram á hann. Ferðamaðurinn reis upp þar sem hún fór hjá, og girti sig.

Ástandið var slæmt í fyrra. Þá komu 1,3 milljón ferðamanna til landsins. Nú er gert ráð fyrir 1,7 milljón ferðamönnum. Og litlar úrbætur hafa verið gerð í tíð þess ráðherra sem ber ábyrgð á ferðamálum, Ragnheiði Elínu Árnadóttur.
Ófremdarástandi lýst í nýrri skýrslu
Í nýútkominni skýrslu verkfræðistofunnar Eflu, sem Stjórnstöð ferðamála óskaði eftir, kemur fram að um hálfgert neyðarástand sé að ræða:
„Við marga af helstu ferðamannastöðum landsins er salernisaðstaða mjög fátækleg og sumstaðar hreinlega ekki til staðar. Þar sem hún er til staðar er hún oft á höndum einkaaðila sem bjóða upp á salerni fyrir sína viðskiptavini, t.d. bensínsstöðvar, matsölustaðir og minjagripabúðir. Utan hefðbundins opnunartíma, t.d. um nætur, á frídögum og á veturna er þessi aðstaða víða lokuð og versnar þá aðgengi að salernum til muna,“ segir meðal annars í skýrslunni:

Sjá nánar skýrsluna hér.
Hraukurinn á miðri heimkeyrslunni
En, Helga þarf svo sem enga skýrslu til að láta segja sér þetta. „Í fyrra vorum við að taka eftir þessu út um allt og steininn tók úr þegar hraukurinn var í miðri innkeyrslunni.“
Helga lýsir því að þetta sé sérstaklega þegar fólk er að keyra austurleiðina, sé kannski að koma frá Egilsstöðum snemma dags eða að nóttu; þá er nákvæmlega engin aðstaða á leiðinni. „Ekkert klósettstopp fyrr en á Akureyri. Ef þú ert að keyra frá Egilsstöðum, þá ertu í djúpum skít í orðsins fyllstu,“ segir Helga og kallar eftir úrbótum.

Jónasarlundur orðinn útskitið ógeð
Helga fer sem ljósmyndari víða og hún segir að lautunum sem menn geta hætt sér í fari mjög fækkandi. „Á leiðinni inn í Akureyri er skógarreitur og grínlaust, við neðra bílastæðið þar er klósettpappírsrúlla á trjágrein. Jónasarlundur er útskitinn, mannaskítur út um allt og algjört ógeð.“
Helga segir þetta eiga við um dreifbýlið allt. Sérstaklega þar sem langt er á milli þjónustustaða. Og þessir litlu camperar, eða húsbílar, þeir eru ekki með ferðaklósett.
„Nú, ef fólki verður brátt í brók, þá er það bara þannig. Ef við erum að taka á móti þessu fólki þá verðum við að gera það almennilega. Þetta er ekki fólki bjóðandi. Við erum að rukka fyrir gistingu, sem kostar kannski annað nýrað og það er engin þjónusta,“ segir Helga.
Sum svæði á hendi sveitarfélaga
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra sat fyrir svörum í Bítinu í morgun þar sem salernisaðstaða fyrir ferðamenn um land allt var til umræðu. Þar sagði Ragnheiður Elín meðal annars að verið væri að verja 200-300 milljónum króna í uppbyggingu á salernisaðstöðu í augnablikinu.
Þá væri það einfaldlega þannig að á ákveðnum stöðum, svo sem Jökulsárlóni og Seljavallalaug, væri það ekki upp á stjórnvöld að klaga að bæta úr þeim efnum. Sama gilti um Seljalandsfoss.
„Sveitarfélagið sem hefur umsjón með þeim stað þarf að girða sig í brók og klára þetta,“ sagði Ragnheiður en viðtalið má finna hér að neðan.