Lífið

Strákarnir í landsliðinu leggja UNICEF lið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eins og flestir vita standa strákarnir okkar í landsliði karla í fótbolta í ströngu í kvöld þegar þeir mæta Portúgal á EM. Í undirbúningnum fyrir mótið tóku þeir sér þó tíma frá æfingu til að leggja málstað UNICEF lið.

Þeir Gylfi Þór Sigurðsson, Kolbeinn Sigþórsson, Hannes Þór Halldórsson og Jóhann Berg Guðmundsson vippuðu sér í UNICEF-treyjur fyrir landsliðsæfingu og sögðu nokkur vel valin orð í myndavél. Vísir birtir hér fyrsta myndbandið en næstu daga munu svo fleiri vídeó með strákunum birtast á samfélagsmiðlum UNICEF á Íslandi og víðar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem karlalandsliðið í fótbolta leggur UNICEF lið. Þeir hafa áður stutt við neyðaraðgerðir UNICEF og hafa veitt ómetanlega hjálp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.