Leiksýningin Njála hlaut heil tíu verðlaun þegar Gríman - íslensku sviðlistaverðlaunin voru afhent í 14. skiptið við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Engin sýning hefur hlotið svo mörg Grímuverðlaun frá því að hafið var að afhenda þau árið 2003.
Njála var sett á svið í Borgarleikhúsinu með Íslenska dansflokknum í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar. Meðal annars hlaut sýningin verðlaun sem sýning ársins og leikrit ársins. Sýningin hlaut ellefu tilnefningar.
Stefán Baldursson, fyrrverandi þjóðleikhússtjóri og óperustjóri Íslensku óperunnar, hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi.
Bestu leikarar í aðalhlutverki voru þau Hilmir Snær Guðnason, fyrir Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, og Brynhildur Guðjónsdóttir, fyrir Njálu. Hér fyrir neðan má sjá alla verðlaunahafa kvöldsins.
Sýning ársins 2016
Njála í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar.
Sviðsetning Borgarleikhúsið og Íslenski dansflokkurinn.
Leikrit ársins 2016
Njála í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar.
Sviðsetning Borgarleikhúsið og Íslenski dansflokkurinn.
Leikstjóri ársins 2016
Þorleifur Örn Arnarsson fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.
Leikari ársins 2016 í aðalhlutverki
Hilmir Snær Guðnason fyrir Hver er hræddur við Virginíu Woolf? í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Leikkona ársins 2016 í aðalhlutverki
Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.
Leikari ársins 2016 í aukahlutverki
Hjörtur Jóhann Jónsson fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.
Leikkona ársins 2016 í aukahlutverki
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Auglýsingu ársins í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Leikmynd ársins 2016
Ilmur Stefánsdóttir fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.
Búningar ársins 2016
Sunneva Ása Weisshappel fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.
Lýsing ársins 2016
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.
Tónlist ársins 2016
Árni Heiðar Karlsson og Valdimar Jóhannsson fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.
Hljóðmynd ársins 2016
Valdimar Jóhannsson og Baldvin Þór Magnússon fyrir Kafla 2: Og himinninn kristallast í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.
Söngvari ársins 2016
Elmar Gilbertsson fyrir Don Giovanni í sviðsetningu Íslensku óperunnar.
Dans – og sviðshreyfingar ársins 2016
Erna Ómarsdóttir fyrir Njálu í sviðsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.
Dansari ársins 2016
Aðalheiður Halldórsdóttir fyrir Persóna – What a feeling í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.
Danshöfundur ársins 2016
Inga Huld Hákonardóttir og Rósa Ómarsdóttir fyrir The Valley í sviðsetningu Menningarfélagsins Tvíeindar, Reykjavik Dance Festival og Tjarnarbíós.
Útvarpsverk ársins 2016
Fylgsnið eftir Hávar Sigurjónsson. Leikstjórn Hilmar Jónsson, framleiðandi Útvarpsleikhúsið á RÚV.
Sproti ársins 2016
Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors fyrir Flóð í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Barnasýning ársins 2016
Vera og vatnið eftir Tinnu Grétarsdóttur, Snædísi Lilju Ingadóttur, Guðnýju Hrund Sigurðardóttur og Sólrúnu Sumarliðadóttur í sviðsetningu Bíbí og blaka.
Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands 2016
Stefán Baldursson.
Menning