Jarðskjálfti af stærð 4,0 varð á norðurbrún Bárðarbunguöskjunnar klukkan 13:17 í dag. Um tuttugu eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið og hafa þeir stærstu mælst 3,2 klukkan 13:18 og 3,9 klukkan 13:45.
Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að einnig hafi mælst skjálfti af stærð 3,5 á suðurbrún Bárðarbunguöskjunnar klukkan 07:19 í morgun.
„Hrinan stóð yfir milli kl. 13:15 og 14:00 og hefur virknin róast talsvert síðan þá.
Skjálftinn kl. 13:17 er þriðji stærsti skjálfti frá goslokum í Holuhrauni í febrúar 2015. Alls hafa mælst 55 jarðskjálftar stærri en 3 og þrír skjálftar stærri en 4 síðan þá.“
Jarðskjálfti af stærð 4,0 við norðurbrún Bárðarbunguöskju
Tengdar fréttir
Bárðarbunga: Engin merki komin fram um breytingar á botni öskjunnar frá síðasta ári
Vísindaráð almannavarna fundaði í dag þar sem farið var yfir niðurstöður mælinga og athugana á Bárðarbungu undanfarnar vikur.