Gutta og Þór/KA-stelpurnar á siglingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2016 18:15 Þór/KA er búið að vinna fjóra leiki í röð í öllum keppnum. Vísir/Anton
Norðankonur unnu sinn þriðja sigur í röð í Pepsi-deild kvenna í dag þegar ÍBV heimsótti Þór/KA á Akureyri. Þór/KA vann leikinn 2-0. Þór/KA-liðið skoraði bæði mörkin sín á lokakafla fyrri hálfleiksins en Sandra Stephany Mayor Gutierrez gerði það fyrra á 33. mínútu en Andrea Mist Pálsdóttir skoraði það síðara á 44. mínútu. Þór/KA náði Val að stigum en er áfram í fjórða sætinu á verri markatölu. Liðið er aftur á móti komið með fimm stiga forskot á ÍBV-liðið sem er áfram í 5. sæti deildarinnar. Þór/KA hefur nú unnið þrjá deildarleiki í röð án þess að fá á sig mark og við bætist leikur í átta liða úrslitum bikarsins þar sem vann 1-0 sigur á Fylki. Sandra Stephany Mayor Gutierrez skoraði sigurmarkið á móti Fylki og hefur skorað fjögur mörk í sigurgöngunni. Sandra er kölluð „Gutta" fyrir norðan og þessi landsliðskona Mexíkó hefur heldur betur reynst norðanliðinu vel í sumar. Þór/KA-liðið tapaði 6-1 á móti Val 29. júní síðastliðinn en hefur svarað þessu slæma tapi á Valsvellinum með því að vinna fjóra leiki í röð. Leikur Þór/KA og ÍBV í kvöld var annar af tveimur leikjum liðanna á Þórsvellinum í þessari viku því liðin mætast aftur í undanúrslitum Borgunarbikarsins á laugardaginn kemur.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Dóttir Scholes fékk svakalegt augnaráð frá pabba sínum Enski boltinn Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Enski boltinn Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Enski boltinn Heimta að Ísrael verði vísað úr keppni Fótbolti Áhorfandi hrækti á dómara í Garðabæ Íslenski boltinn Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Enski boltinn Á að reka umboðsmanninn á stundinni Enski boltinn Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Körfubolti „Guð hvað ég hafði rangt fyrir mér og ég er ánægður með það“ Íslenski boltinn Úlfur talinn sá allra besti vestanhafs Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Kristjáns: Þá vitum við að hún er ekkert að grínast Leik lokið: Fram - Víkingur 2-5 | Markasúpa er Víkingar komust aftur á sigurbraut Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Valur 0-2 | Valskonur á siglingu Áhorfandi hrækti á dómara í Garðabæ Úlfur talinn sá allra besti vestanhafs „Guð hvað ég hafði rangt fyrir mér og ég er ánægður með það“ Bræðraslagur í bikarúrslitaleiknum í ár: „Er alltaf að reyna að ögra mér“ KSÍ opið fyrir sjálfkrafa bönnum en reglubreyting ekki í vinnslu Valsmenn bara mannlegir? „Ég ætla ekki í eina einustu tæklingu hérna“ Tvö mörk með fyrstu tveimur snertingunum Stúkan birti samskipti dómara: „Ég þarf að taka stórar ákvarðanir“ Sjáðu Galdurinn á bak við það að KR komst úr fallsæti Uppgjörið: Fram - KR 0-1 | Galdur galdraði fram sigur Fyrirliði Fylkis sleit krossband í sigrinum langþráða Fram spilar og selur treyjur til styrktar minningarsjóðs Bryndísar Klöru Sjáðu veisluna í Kópavogi, magnaðan klobba og perluna í Eyjum „Búið að vanrækja ákveðið innra starf í Garðabænum“ Sjóðheitur Sigurður Bjartur með sjö mörk í síðustu fimm leikjum Fyrsti sigurinn á gervigrasi í 357 daga „Maður þurfti kvíðalyf síðustu mínúturnar“ Axel Óskar: „Fáir leiðinlegir leikir hér fyrir áhorfendur“ Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-5 | Bragi breytti leiknum og Blikar sitja eftir í sárum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 0-1 | Víkingur minnkar muninn á Val með langþráðum deildarsigri Uppgjörið: Afturelding - KA 3-3 | Mikið fjör en enn lengri bið eftir sigri Davíd Smári: „Menn eru með vofandi yfir sér risastórt augnablik“ Frábær sigur Þórs sem sækir að efsta sætinu Jökull: Ætlum okkur ofar Þróttarar fyrstir til að vinna Njarðvíkinga Uppgjörið: Stjarnan - Vestri 2-1 | Andri Rúnar gerði gömlu félögunum grikk Uppgjörið: ÍBV - Valur 4-1 | Eyjamenn rúlluðu yfir toppliðið Sjá meira