Unnu Norðurlandameistarana og tryggðu sig inn í átta liða úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2016 16:31 Íslenska 18 ára landsliðið. Mynd/FIBAEurope
Stelpurnar í íslenska átján ára landsliðinu í körfubolta unnu átta stiga sigur á Finnum í B-deild Evrópukeppninnar í Bosníu í dag. Finnarnir, sem eru nýkrýndir Norðurlandameistarar, sóttu að íslensku stelpunum undir lok leiks en okkar stelpur héldu út og fögnuðu mikilvægum sigri, 81-73. Stelpurnar trygðu sér þar með sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Íslenska liðið lék mjög vel í fyrstu þremur leikhlutunum í leiknum. Liðið var sextán stigum yfir í hálfleik, 45-29 og var komið 22 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 66-44. Finnarnir náðu að laga stöðuna í lokaleikhlutanum en þeir unnu hann 29-15 og komu muninum niður í átta stig. Haukastúlkan Sylvía Rún Hálfdanardóttir átti stórleik en hún var með tröllatvennu, 28 stig og 20 fráköst, auk þess að senda 5 stoðsendingar og stela 5 boltum. Keflvíkingurinn Emelía Ósk Gunnarsdóttir var með 15 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar auk þess að spila frábæra vörn en íslenska liðið vann með 31 stigi þegar hún var inná vellinum. Íslenska liðið gaf talsvert eftir þegar hún fékk sina fimmtu villu. Blikinn og verðandi Valsarinn Elín Sóley Hrafnkelsdóttir var síðan með 13 stig og 15 fráköst auk þess að stela 2 boltum. Íslenska stelpurnar hefndu þar með fyrir sex stiga tap á Norðurlandamótinu í júní en Finnar urðu þar Norðurlandameistarar en íslenska liðið fékk þá brons. Íslenska landsliðið hafa þar með unnið 3 af fyrstu 4 leikjum sínum á mótinu en þetta óopinber úrslitaleikur um annað sætið riðilsins. Tvö efstu sætin gefa sæti í átta liða úrslitunum. Heimastúlkur í Bosníu eru síðan ósigraðar á toppi riðilsins.Sylvía Rún Hálfdanardóttir nær hér frákasti á mótinu.Mynd/FIBAEurope
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira