Menning

Myndlistasýning og tónleikar í Garðaholti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Álfheiður Ólafsdóttir sýnir sín verk.
Álfheiður Ólafsdóttir sýnir sín verk.
Álfheiður Ólafsdóttir frá Kirkjulæk í Fljótshlíð opnar listsýningu á olíumálverkum í Króki Garðaholti kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 6. ágúst næstkomandi. 

Á opnuninni munu þær Jóhanna Halldórsdóttir altsöngkona og Helga Aðalheiður Jónsdóttir blokkflautuleikari flytja nokkur lög.

Álfheiður er menntaður myndlistamaður frá Myndlista og handíðaskólanum.

Hún hefur sýnt víða, myndirnar hafa selst víða um heim og eru einnig í opinberri eigu.  Sveitarómantíkin, húmorinn, kærleikurinn og litagleðin er skammt undan í málverkunum.  Á sýningunni eru húsdýrin sem heilla og ævintýraveröldin. 

Álfheiður flutti nýverið ásamt fjölskyldu sinni Suður í Flóa, umhverfið í Flóanum og dvölin á vinnustofunni í Króki eru innblástur verkanna á sýningunni.

Tónleikar í Króki Garðaholti

Jóhanna Halldórsdóttir altsöngkona og Helga Aðalheiður Jónsdóttir blokkflautuleikari verða með tónleika á Króki á Garðaholti alla laugardaga í ágúst kl.14 og 16.  Jóhanna og Helga eru báðar klassískt menntaðar í tónlist og hafa sérhæft sig í túlkun eldri tónlistar. 

Þær flytja íslensk þjóðlög ásamt tveggja radda lögum eftir franska miðaldatónskáldið Guillaume de Machaut (1300-1377). 

Þjóðlögin hafa þær útsett sjálfar fyrir rödd og blokkflautur í ýmsum stærðum og gerðum, allt frá þeirri minnstu „Garklein“ 15cm til bassablokkflautu sem er um meter að lengd.  Prógrammið er sett upp sem ferðalag eða árhringur. 

Það hefst og því lýkur að hausti og er sveipað hljóðverkum og stemningum eftir Hilmar Örn Hilmarsson.

Tónlistarkonurnar koma til með að vera staðsettar í fjósinu á Króki en áheyrendur hins vegar í hlöðunni og því berast tónarnir þeim í gegnum tvær heygjafalúgur.  Spennandi hljóðupplifun í sögulegu og fallegu umhverfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.