Menning

Skólasystur sem nálgast listsköpun hver á sinn hátt

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Aðalheiður, Anna Jóa, Hulda og Ragnheiður gáfu sér tíma til að stilla sér upp í Grafíksalnum fyrir myndatöku.
Aðalheiður, Anna Jóa, Hulda og Ragnheiður gáfu sér tíma til að stilla sér upp í Grafíksalnum fyrir myndatöku. Vísir/Hanna
Það eru þær Aðalheiður Valgeirsdóttir, Anna Jóa, Hulda Hrönn Ágústsdóttir og Ragnheiður Guðbjargar Hrafnkelsdóttir sem sameinast um sýninguna Nálgun sem opnuð verður í Grafíksalnum á morgun, 28. júlí. Þær eru skólasystur en svolítið í kross, sumar úr listfræði, aðrar úr heimspeki og allar eru myndlistarmenntaðar.

Hulda sýnir ljósmyndir og verk sem hún ætlaði vissum stað í salnum. Anna Jóa er með teikningar, pappírs- og textaverk og sækir hugmyndir til mynstra í útsaumi og fatnaði, Ragnheiður Guðbjörg leikur sér með textíl og pappír í tveimur gólfverkum og Aðalheiður leitar í nærumhverfi sitt í Biskupstungum í málverkum sínum.

Listakonurnar eru að byrja að máta verkin við salinn þegar blaðamann ber að. Þær segja heiti sýningarinnar, Nálgun, vísa til þess hvernig einstaklingur nálgast listsköpun sína og sýningarrýmið, líka til samtalsins við aðra sýnendur og til þess gjörnings sem samsýning felur í sér.

Anna Jóa og Aðalheiður starfa sem listfræðingar og sýningarstjórar. „Því er svolítið skrítið að vera nú í hóp þar sem enginn sýningarstjóri er,“ segir Aðalheiður. „Já, það er áskorun,“ tekur Anna Jóa undir. Allar eru sammála um að samsýningar séu skemmtilegt form, þar sem verkin séu af ólíkum toga og kúnst að finna út hvernig þeim sé best fyrir komið þannig að áhorfandinn njóti þeirra.

„Ég sýndi nú á Kjarvalsstöðum nýlega með 27 öðrum,“ segir Anna Jóa og lætur verkefnið ekki vaxa sér í augum. „En þar var líka sýningarstjóri,“ bætir hún svo við og dæsir. Enn segja þær samkomulagið vera gott. „Við ætlum samt að fara að taka pásu og viðra okkur,“ segir Hulda hlæjandi.

Sýningin verður opnuð á morgun klukkan 17 og verður opin fimmtudaga til sunnudaga klukkan 14 til 18 til 14. ágúst. Gengið er inn hafnar­megin og aðgangur er ókeypis.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. júlí 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.