Svona líður manni þegar maður vinnur Grikki og kemur Íslandi í úrslit | Myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2016 10:45
Strákarnir í tuttugu ára landsliðinu fögnuðu gríðarlega í gærkvöldi þegar liðið hafði tryggt sér sæti í úrslitaleiknum B-deild EM 20 ára liða og þar með sæti í A-deildinni á næsta ári. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska 20 ára landsliðið mun taka þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins en aðeins sextán bestu þjóðirnar taka þátt í A-deildinni á hverju sumri. Íslenska liðið lenti undir á móti Grikklandi í gær og Grikkirnir voru á heimavelli, vel studdir af sinu fólki. Strákarnir okkar gáfust ekki upp, unnu sig inn í leikinn og fögnuðu svo sigri eftir æsispennandi lokamínútur. Það vakti athygli að íslenska liðið gat komist yfir það að missa stigahæsta og stoðsendingahæsta leikmann sinn meiddan af velli. Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson var ekki með seinni hluta leiksins og munaði mikið um hann. Haukamaðurinn Kári Jónsson tók liðið á herðar sér í lokin og var umfram allt sá leikmaður sem sá til þess að sigurinn féll Íslands megin. Kári endaði á því að skora 29 stig í leiknum og Grikkirnir réðu ekkert við hann. Ljósmyndari FIBA Europe var á staðnum og náði skemmtilegum myndum af því þegar sigurinn var í höfn og íslensku strákarnir fögnuðu eins og þeim er einum lagið. Það er hægt að sjá þessar skemmtilegu myndir hér fyrir neðan.Mynd/FIBAEurope
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira