Haukur Helgi samdi við franskt lið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2016 14:11 Haukur Helgi Pálsson í leik með Njarðvík í fyrra. vísir/ernir
Haukur Helgi Pálsson hefur gert samning við franska liðið Rouen og mun því ekki spila með Njarðvíkingum í Domino´s deild karla í körfubolta á komandi tímabili. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Njarðvík. Haukur Helgi var búinn að endurnýja samning sinn við Njarðvík en í honum var klásúla um að hann gæti samið við erlent félag. Haukur Helgi var valinn besti leikmaður Domino´s deildar karla á síðustu leiktíð en hann var þá með 17,9 stig, 7,5 fráköst og 4,3 stoðsendingar að meðaltali í leik. „Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur óskar Hauki Helga til hamingju með nýja samninginn og þakkar honum einnig fyrir þann tíma sem hann starfaði hjá félaginu. Haukur var frábær liðsmaður bæði innan sem utan vallar, ljóst er því að mikil eftirsjá verður af honum. Við vorum að honum vegni sem best í Frakklandi en vonumst eftir að fá hann aftur í grænt í framtíðinni," segir í fréttatilkynningu frá Njarðvík. Bæði Reykjanesbæjarliðin hafa því misst landsliðsmenn með svipuðum hætti því Hörður Axel Vilhjálmsson var búinn að gera samning við Keflavík þegar hann fékk tilboð frá Grikklandi. Haukur Helgi er 24 ára gamall framherji sem vakti mikla athygli fyrir flotta frammistöðu sína á Eurobasket í Berlín 2015. Hann er lykilmaður í íslenska körfuboltalandsliðinu Rouen verður fimmta atvinnumannafélagið sem Haukur Helgi Pálsson spilar með en hann hefur einnig verið hjá spænsku liðunum Manresa, Breogán og Baskonia sem og sænska liðinu LF Luleå.
Dominos-deild karla Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira