Ætlar að drekka kaffi hjá Bjarna og eyðileggja bækur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. ágúst 2016 08:15 Guðmundur Óli með nýju bókina. Hún geymir rökkursögur sem hann sagði dætrum sínum litlum.
Ný bók Guðmundar Óla Sigurgeirssonar, kennara á Kirkjubæjarklaustri, heitir Við ána sem ekki var. Hún geymir æskuminningar hans af Bakkabæjum á Rangárvöllum og er skreytt teikningum. Hann ætlar að lesa upp úr henni og árita hana í Bókakaffinu á Selfossi í dag frá klukkan 14 til 17. Bókin er þar á tilboðsverði í tilefni þess að höfundurinn á 67 ára afmæli og hefur þar með hlotið löggildingu sem heldri borgari. Guðmundur Óli segir umdeilanlegt hversu langur tími hafi farið í bókarskrifin. „Ég á dætur sem eru í kringum fertugt og sumar af þessum minningum úr æsku minni sem rifjaðar eru upp í bókinni sagði ég þeim sem rökkursögur þegar þær voru litlar. Ég ætlaði ekkert að gera meira en þær vildu að ég skrifaði sögurnar niður svo þær gætu sagt þær sínum börnum. Ég lét það eftir þeim og dreifði þeim á lokuðum síðum á fésbókinni meðal ættingja. Þá fékk ég mikla hvatningu til að koma efninu út á bók og það endaði með því að sögurnar urðu að handriti sem ég sýndi Bjarna Harðarsyni, bóksala og útgefanda. Svo fékk ég vin minn og nágranna hér á Klaustri, Pál Ragnarsson, fyrrum bónda á Hörgslandi á Síðu og síðar innanbúðarmann á Klaustri, til að myndlýsa sögurnar með blýantsteikningum. Úr er orðið þetta bókarkorn.“ Síðasta frásögnin í bókinni gerist þegar Guðmundur Óli er sautján ára, en flestar gerast sitt hvorum megin við tíu ára aldurinn, að hans sögn. Allar snúast um þann heim sem hann lifði á Rangárvöllunum. „Heimurinn var ekkert stór á þeim árum. Bærinn minn, Eystra-Fróðholt, var nafni alheimsins,“ segir hann glettinn og bætir við. „Ég vil meina að bókin sé dálítill aldarspegill því hún segir frá lífi barns sem elst upp sem einbirni í sveit þar sem ekki er rafmagn, ekki sími og ekki rennandi vatn og þetta er samt á seinni hluta síðustu aldar. Rafmagnið kom ekki fyrr en ég var um fermingu.“ Í kynningu frá útgefandanum, Bjarna Harðar, segir um efni bókarinnar: „Þó Bakkabæir séu skildir frá meginhluta Rangárvalla af vatnsföllum er paufast í skóla á Strönd og ungmenni fá skólun í ástum þegar vinnuhjúin á Móeiðarhvoli taka til við kossa í Fljótshlíðarferð á Landrovernum.“ Afmælinu kveðst Guðmundur Óli ætla að fagna með þeim hætti að drekka kaffi hjá Bjarna og leika sér að því að eyðileggja bækur fyrir fólki með hrafnasparki á titilblað ef það vilji!Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. ágúst 2016
Lífið Menning Mest lesið Nakinn á kóræfingu Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Verður staðartónskáld Sinfó Fékk leyfi Nóbelskálds fyrir heiti nýrrar bókabúðar í Hamraborg Líf og fjör í loðnu málverkunum Kristrún og Isabelle Huppert flottar á opnun Húsó fjarlægðir af Rúv Sígildar myndir og heimsfræg leikkona á franskri kvikmyndahátíð Viðbjóðurinn fær sviðsljósið: „Eilíft vakir minning þín, slef, prump, piss, og þvag og slím“ Blint stefnumót heppnaðist vel Halla T meðal sofandi risa Líkamsumhirða sem þróast í þráhyggju Bestu og verstu leiksýningar síðasta leikárs Trölli stelur jólunum í Borgarleikhúsinu Baltasar Samper látinn Nýr óperustjóri: Lengri samningar og stöðugleiki nýlunda í íslensku óperulífi Vilhjálmur Bergsson er látinn Ólafur Jóhann er konungur bóksölunnar 2025 Enginn formaður Sjalla, Kaffi Vest-samsærið og vinir skoðanabræðra Sjá meira