Rófan nefnd appelsína norðursins Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. ágúst 2016 11:15 Grillaður rófukubbur, forréttur hentar í hvaða veislu sem er. Fréttablaðið/Hanna
Gulrófan er vanmetið hráefni á Íslandi. Við ættum að borða hana í hvert mál. Hún er góð bæði hrá og elduð. Gult er líka nauðsynlegt fyrir tilfinningarnar og sköpunarstöðina,“ segir Áslaug Snorradóttir, ljósmyndari og matargúrú, sem töfrar fram smárétti með bragð, útlit og hollustu í huga. Hún segir rófuna stundum nefnda appelsínu norðursins vegna þess hversu C-vítamínrík hún er. Smjörsoðnar rófur eru í uppáhaldi, þá er 100 grömmum af smjöri bætt í soðvatnið undir lokin. Þemað hjá Áslaugu í dag er hádegislautarferð með fjögurra rétta rófumáltíð. Hún breiðir úr hvítum dúk og raðar réttunum á diska eftir Bjarna Viðar Sigurðsson keramiker. Hún hefur forsoðið rófurnar og grillað þær á grillpönnu með miklu smjöri, til að fá fram grilleffekt og góða sætu. Líka búið til pestó til að hafa með forréttinum. Girnilegt fóður í lautarferð. Pestó Góð ólífuolía, helst með extra mikilli sól frá Sikiley Kasjúhnetur Basilíka Mixað með töfrasprota.Forrétturinn: Grillaður rófukubbur Aflangur kubbur af rófu sem búið er að forsjóða og grilla á öllum hliðum Pestó Grænkálsspírur Tómatur, grillaður Raðað upp í þeirri röð sem að ofan greinir. Grænt fyrir hjartað og gult fyrir tilfinningarnar og sköpunarstöðina. Vísir/Hanna Grillaðir rófubitar á viðarteinungi Rófubitar, grillaðir á alla kanta þræddir upp á viðarteinung Nokkur grænkálsblöð, grilluð í smjöri á pönnu 1/2 sítróna, grilluð Sól og sæla á grillpönnu. Eco-baunaspírur settar í bunka á disk og greinin með rófunum lögð ofan á. Grænkálinu dreift um diskinn og sítrónan lögð hjá. „Spírurnar eru próteinbomba, grænkálið þrungið af bætiefnum og sítrónan gerbreytist grillunina,“ segir Áslaug. "Í hádeginu er sól hæst á lofti, þá á maður að borða gult,“ segir Áslaug. Fréttablaðið/Hanna Grilluð rófusnitta með reyktum makríl 1 sneið af rófu, forsoðin og grilluð 1 flak reyktur makríll Lítill biti af rauðlauk 1 grein flöt steinselja Nokkur skjaldfléttublóm Nokkur krækiber Rófan er sæt og makríllinn reyktur, því smella þau vel saman. Makríllinn er skafinn af roðinu og settur ofan á hálfa rófusneiðina, rauðlaukurinn er saxaður og settur ofan á, steinseljan sett þar ofan á. Skjaldfléttublómin eru bæði til skrauts, hollustu og bragðbætis og krækiberin líka. Rófusteik með súmaki og kornhænueggjum Súmak er arabískt krydd, svo þessi réttur er með arabísku ívafi. Rófusteik með súmaki og kornhænueggjum 1 grilluð rófusneið Skvetta af ólífuolíunni góðu Mínítómatar, gulir og grænir, (ræktaðir í Sólheimum, keyptir í Frú Laugu) Súmak-krydd Kornhænuegg (Keypt í Frú Laugu) Graslaukur Grillaða rófusneiðin er lögð á disk. Ólífuolíunni hellt yfir hana og út fyrir og gulum og grænum smátómötum dreift yfir diskinn, ýmist heilum eða hálfum. Kryddi og graslauk stráð yfir. Eggin höfð á kantinum.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. ágúst 2016
Grillréttir Grænmetisréttir Uppskriftir Mest lesið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Lífið samstarf Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Fleiri fréttir Brennivín hlaut gullverðlaun Sjá meira