Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum Karl Lúðvíksson skrifar 25. ágúst 2016 09:00 Mynd: www.ranga.is
Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum á heimasíðu Landssambands veiðifélaga breytir lítið uppröðin aflahæstu ánna á þessu sumri. Ytri Rangá er sem fyrr aflahæst en vikuveiðin í henni var 411 laxar sem er nokkuð minni veiði en vikurnar á undan en heldur hefur dregið úr göngum í ánna. Það er engu að síður mikið fiski í henni og nóg eftir af veiðitímanum. Miðfjarðará heldur öðru sætinu með 3.287 laxa og 282 laxa vikuveiði. Það hefur lítið breyst á vesturlandi en árnar eru að falla aftur í vatni og takan er erfið eins og hún hefur verið síðustu 2-3 vikurnar. Þverá og Kjarrá koma best út á vesturlandi með 116 laxa veidda á vikutímanum en heildarveiðin þar er komin í 1.683 laxa sem er um 300 löxum undir meðalveiði áranna 1974-2008 en það á ennþá eftir að veiða í smá tíma í ánni svo hún verður mjög nálægt meðaltalinu á þessu sumri sem er bara mjög ásættanlegt í alla staði. Árnar sem hafa átt afar erfitt sumar sýna lítinn bata en það er þó ekki alltaf laxleysi að kenna eins og í Laxá í Kjós þar sem nokkuð er af laxi en áin bara búin að vatnslaus í allt sumar. Árnar sem mynda topp tíu listann yfir aflahæstu árnar eru hér fyrir neðan en listann í heild sinni má finna á www.angling.isYtri Rangá - 5878 Miðfjarðará - 3287 Eystri Rangá - 2696 Blanda - 2244 Þverá/Kjarrá - 1683 Norðurá - 1171 Haffjarðará - 1114 Langá - 1033 Laxá í Aðaldal - 904 Víðidalsá - 810
Mest lesið Helgin var góð í Ytri Rangá Veiði Lifnar loksins yfir Elliðavatni Veiði Veiðiferð með Veiðivísi í Ytri Rangá Veiði Veiðihúsið við Hítará fær yfirhalningu Veiði Lokatölur komnar úr Norðurá Veiði Breiðdalsá með augum Nils Jörgensen Veiði Sjóbirtingsveiðin búin að vera góð fyrir austan Veiði Mikið af sjóbirting í Varmá Veiði Tarantino tók maríulaxinn í Hítará Veiði Vika eftir í Elliðaánum Veiði