Menning

Vinkonur halda upp á afmælið sitt saman

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Anna Gréta og Stína eru báðar búsettar í Stokkhólmi þar sem þær eru athafnasamar í sænsku djasssenunni og koma reglulega fram víða um Svíþjóð.
Anna Gréta og Stína eru báðar búsettar í Stokkhólmi þar sem þær eru athafnasamar í sænsku djasssenunni og koma reglulega fram víða um Svíþjóð.
Anna Gréta Sigurðardóttir og Stína Ágústsdóttir halda tónleika ásamt gestaspilurum á sameiginlegu afmæli sínu í kvöld. Á dagskrá verða einungis þeirra uppáhaldslög.

„Þar sem við Anna Gréta Sigurðardóttir píanisti eigum báðar afmæli í dag þá tókum við okkur saman og ákváðum að halda tónleika,“ segir Stína Ágústsdóttir söngkona spurð út í Dúettinn 23/8 sem sem kemur fram í Hannesarholti í kvöld þar sem gleðin og hamingjan mun ráða ríkjum.

Á dagskrá verða einungis þeirra uppáhaldslög og ekkert verið að festa sig við tegund tónlistar eða uppruna. Flest verður þó nokkuð djassskotið og auðvelt áheyrnar þar sem þær spila einna helst djasstónlist þegar þær koma fram saman.

„Það er aldrei að vita nema við fáum einhverja gestaspilara í heimsókn,“ segir Stína og hvetur sem flesta til þess að mæta og gleðjast með þeim vinkonum á þessum skemmtilegu tímamótum.

Fyrri verkefni þeirra vinkvenna hafa vakið athygli en nýliðin sumur ferðuðust þær um Ísland með hljómsveit sinni og spiluðu tónlist Bjarkar í djassútsetningum og tónlist sænsku djassdívunnar Monicu Zetterlund. Anna Gréta og Stína eru báðar búsettar í Stokkhólmi þar sem þær eru athafnasamar í sænsku djasssenunni og koma reglulega fram víða um Svíþjóð með þekktum sænskum tónlistarmönnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.