Hvorki Bale né Ronaldo með Real Madrid í kvöld Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 18. september 2016 13:45 Ronaldo og Bale vísir/getty
Real Madrid verður án sinna tveggja skærustu stjarna þegar liðið sækir Espanyol heim í kvöld í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.Cristiano Ronaldo og Gareth Bale missa báðir af leiknum í Barcelona í kvöld. Ronaldo er búinn að jafna sig af meiðslunum sem hann varð fyrir í úrslitaleik Evrópumeistaramótsins en liggur með flensu. Bale á við smávægileg meiðsli að stríða í mjöðm.Zinedine Zidane þjálfari Real Madrid staðfesti þetta við fjölmiðla í aðdraganda leiksins í kvöld en báðir leikmennirnir eru væntanlegir aftur í liðið þegar Real Madrid fær Villarreal í heimsókn á miðvikudaginn. „Cristiano ferðast ekki með okkur, hann er með hálsbólgu og heldur sig heima. Hann er ekki tilbúinn,“ sagði Zidane við fjölmiðla. „Bale fékk fast högg á mjöðm og við tökum enga áhættu. Við eigum góða leikmenn sem geta leyst þá meiddu af hólmi. „Ég vil hafa Gareth 100% heilan fyrir erfiðan leik á miðvikudag. Á morgun (í kvöld) gæti hann fengið högg á sama stað aftur og verið frá í 10 daga eða lengur,“ sagði franski þjálfarinn.James Rodriguez mun fá tækifæri í byrjunarliði Real Madrid vegna meiðsla Ronaldo og Bale en hann hefur verið orðaður við Manchester United að undanförnu og sagður ósáttur við að byrja alla leiki Real Madrid til þessa á tímabilinu á bekknum. Leikur Espanyol og Real Madrid er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD klukkan 18:45.
Spænski boltinn Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Fleiri fréttir „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Sjá meira