Menning

Leggur áherslu á litrík æskuár Mozarts og Liszts

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Anna Málfríður verður með tónleika og fyrirlestur í Hannesarholti.
Anna Málfríður verður með tónleika og fyrirlestur í Hannesarholti. Mynd/Ragnhildur Sigurðardóttir
Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari leikur verk eftir Mozart og Liszt í Hannesarholti við Grundarstíg á laugardaginn klukkan 13.30 og fjallar líka um tónskáldin og verkin sem leikin verða. „Ég verð með sambland af tónleikum og sögustund,“ segir hún.

„Í frásögninni mun ég leggja áherslu á æskuár tónskáldanna sem voru litrík og ævintýraleg og varpa ljósi á það þegar þeir þróast úr undrabörnum yfir í þroskaða listamenn.“



Anna Málfríður kveðst meðal annars skoða hvað þeir Mozart og Liszt áttu sameiginlegt þó að yfir 50 ár skildu þá að í tíma og hvernig ferðalög og kynni af öðrum tónskáldum og verkum höfðu áhrif á þeirra tónsmíðar.

„Ég held að mörgum finnist aðlaðandi að nálgast tónskáldin eins og manneskjur en ekki einungis sem listamenn, þess vegna langaði mig til að spinna smá fróðleik inn í tónleikahaldið,“ segir hún.

Miðaverð er 2.500 krónur en 2.000 fyrir eldri borgara, öryrkja og nema.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 15. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.