Jóhann Steinar nýr framkvæmdastjóri ÍV sjóða Atli Ísleifsson skrifar 14. september 2016 11:09 Jóhann Steinar Jóhannsson. Mynd/Auðunn Níelsson
Jóhann Steinar Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ÍV sjóða hf. Hann tekur við starfinu af Jóni Helga Péturssyni sem tekur við starfi forstöðumanns rekstrarsviðs Íslenskra verðbréfa, móðurfélags ÍV sjóða. Í tilkynningu segir að Jóhann Steinar hafi víðtæka reynslu af innlendum fjármálamarkaði, en undanfarin fjögur ár hafi hann starfað við eignastýringu hjá Stapa lífeyrissjóði. Á árunum 2008 til 2011 starfaði hann við fjárfestingar og viðskiptaþróun hjá Tryggingamiðstöðinni og þar áður í markaðsviðskiptum, áhættu- og fjárstýringu hjá Stoðum og Straumi fjárfestingabanka. Jóhann Steinar er með MSc gráðu í viðskiptafræði frá Lunds Universitet og BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Kolbeinn Friðriksson, formaður stjórnar ÍV sjóða, segir það vera mikinn styrk fyrir ÍV sjóði að fá Jóhann Steinar til að leiða fyrirtækið. „Sú gerjun sem nú á sér stað á íslenskum fjármálamarkaði og þróttmikill vöxtur efnahagslífsins skapar mikil tækifæri fyrir félag á borð við ÍV sjóði til frekari vaxtar. Stjórn félagsins vill þakka Jóni Helga fyrir vel unnin störf undanfarin 12 ár og koma á framfæri óskum um velfarnað í nýju starfi.“ ÍV sjóðir hf. var stofnað árið 2001 og er dótturfélag Íslenskra verðbréfa hf. með höfuðstöðvar á Akureyri. „Félagið er í dag með stærri rekstrarfélögum verðbréfa- og fjárfestingasjóða landsins, með um 40 milljarða króna í stýringu. Félagið rekur 11 verðbréfa- og fjárfestingasjóði. Sjóðaframboð ÍV sjóða nær til allra helstu tegunda fjármálagerninga sem almennum fjárfestum standa til boða. Hlutverk ÍV sjóða er að ávaxta fjármuni sjóðfélaga með sem bestum hætti með tilliti til áhættu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Atvinnulíf Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Neytendur Bolabítur á buxnaskálm: Fjöldi „kerfisfræðinga“ að misnota veikindaréttinn Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Atvinnulíf Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Neytendur eigi meira inni Neytendur Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Sjá meira