Októberspá Siggu Kling – Fiskur: Þessi margbreytileiki þinn er náðagáfa 7. október 2016 09:00
Elsku hjartans Fiskurinn minn. Haustinu fylgja oft blendnar tilfinningar hjá þér, þú ert alltaf að spá og spekúlera og kannski aðeins of mikið. Þú byggir skýjaborgir og rífur þær jafnharðan niður. Þú ert stuðningsaðili svo margra í kringum þig, svo dásamlega skemmtilega meðvirkur. Það tekur að sjálfsögðu frá þér mikla orku en þú ert elskaður og dáður fyrir þetta. Mesti styrkur þinn felst í tjáningu þinni. Þú ert eitthvað svo beintengdur við almættið að þú færð skilaboð á núll einni ef þú bara spyrð. Það grunar engan hversu feiminn og óöruggur þú ert nema þig sjálfan. Og þú ert það sem öðrum finnst um þig. Þessi margbreytileiki þinn er náðagáfa, þú skilur allt vesen hjá öðrum og botnar svo ekkert í sjálfum þér. Hvert ár sem þú lifir gefur þér meiri gæfu vegna þess að þú færð þá næmari skilning á að lífið mun verða þér gott. Hjarta þitt er úr skínandi gulli og þú elskar skilyrðislaust flest alla, en sjálfan þig ekki nóg. Ef þú heillast af einhverju hellirðu þér bókstaflega á kaf í það. Þar af leiðandi getur hjarta þitt orðið dáldið þreytt því oft er of mikið að gera. Þú þarft að passa þig á stríðninni því það eru miklu fleiri sem taka hana nærri sér en þú veist af. Það býr í þér svo mikill bóhem og þú ert sannkölluð tilfinningavera, svo allir fordómar geta farið fyrir svo mikið fyrir brjóstið á þér. Ef þú skoðar í kringum þig þá áttu mjög flotta og kraftmikla vini, það er svolítið spegilmyndin af þér. Þú vilt nálgast flesta á tilfinningalegu sviði og ert svo ægilega ánægður þegar þú getur hjálpað. Það er þetta sem færir þér þessa dásamlegu vináttu sem þú svo sannarlega átt. Það er mikil ástríða í kringum þig og þú elskar stundum of mikið, ef það er hægt. Þá er ég að tala um allt og alla ekki bara maka eða kærustu og þú verður svo rosalega hissa ef fólk bregst þér. Þegar þú lendir í því getur þú sýnt of mikla taugaveiklun og þá getur þú verið of fljótfær í orðum. Það stendur á stórum vegg í Advania, setning eftir mig og ég vissi ekki einu sinni af því fyrr en 2 árum seinna að hún stæði þar. Sú setning er: Ef þú hefur ekkert gott að segja, þá skaltu bara þegja. Þú skalt nota þetta sem leiðbeinandi skilaboð til þín þennan mánuðinn. Þó þig langi að vera hreinskilinn með margt, þá skaltu eiga suma hluti bara með sjálfum þér, það er þér fyrir bestu – elsku hjartað mitt. Þótt þú sért rosalega sterkur, þá ertu svo dásamlega viðkvæmur og getur svo auðveldlega orðið móðgaður og sár. Þú verður að skilja að sumt er ekki meint í vondu þótt þú takir það til þín. Þú ert á mjög rísandi tímabili, ert að setja inn mikið sjálfstæði og lífið er að gerast miklu hraðar heldur en þú gerir þér grein fyrir. Þú þarft að sleppa því að vera svona skyldurækinn því þá gleymir þú að sinna þínum löngunum og þörfum. Þú þarft bara að klappa saman höndunum og fagna því að vera svona dásamlegur Fiskur. Knús og klapp, Sigga Kling Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum t0ga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Sjá meira