Októberspá Siggu Kling – Meyja: Þú hefur enn tíma til að setja í fimmta gír 7. október 2016 09:00
Elsku besta frábæra Meyjan mín. Þú ert svo pottþétt á yfirborðinu en ert samt alltaf til í tuskið. Ég hef sagt það áður að það er eins og þú sért með Gucci-prik í rassinum. Þú ert alltaf svo bein og svo flott. Þú mundir auðvitað aldrei setja eitthvert prik upp í rassinn á þér nema það væri ekta. Þú ert svo ráðagóð en heldur svoldið aftur af þér, þú skalt núna sleppa þér alveg frjálsri, þá muntu þjóta í gegnum fjallið. Þú ert á merkilegum tímum þar sem þú ert nýbúin að eiga afmæli sem táknar upphaf að nýjum sigrum. Það er svo mikilvægt fyrir þig að vinna sjálfstætt og það væri nóg að setja á ferilskrána: „Ég er meyja,“ og það væri bara vitleysingur sem myndi ekki ráða þig í hvað sem er. En þegar þú hefur ekki stjórn á þeim stað sem þú ert á, þá fer þér að leiðast og þú nennir þessu ekki. Svo þú þarft að vera mjög skýr, hvort sem þú ert í skóla eða hvar sem er – þú þarft að hafa lausan tauminn. Ef þú ert ekki búin að sýna frumkvæði í september, þá ertu örg og pirruð út í sjálfa þig, þú hefur enn tíma til að setja í fimmta gír og fara yfir allar holur sem eru framundan. Eini frasinn sem þú mátt ekki nota næsta mánuðinn og þarft að gjörsamlega að sleppa úr orðaforða þínum er: „Ég vorkenni sjálfri mér.“ Það gerir þig lina og leiðinlega. Þú verður að velja á milli þess að ná árangri, sama hvað þú kallar árangur, eða setja allan kraft í ástina, það er annað hvort. Spurðu, hvort er mikilvægara, frami þinn eða ástin. Þegar líða tekur á veturinn, muntu geta sameinað hvort tveggja, það er í kortunum þínum. Ef þú skoðar betur, þá er grunnurinn kominn að því sem þú ætlar að gera. Þig vantar bara yfirbygginguna. Maður er oft þreyttur þegar maður sér ekki allt skýrt fyrir sér, hvernig hlutirnir eiga að vera. Róm var hvorki byggð né brennd á einum degi. Svo vertu þakklát fyrir það sem þú hefur því þú ert búin að afreka margt og þetta er rétt byrjunin. Knús og klapp, Siggi Kling Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum t0ga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Fleiri fréttir Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sjá meira