Teiknimyndafroskur veldur usla Stefán Þór Hjartarson skrifar 6. október 2016 10:15 Froskurinn Pepe ber það ekki utan á sér að vera nasisti eins og hann hefur nú verið flokkaður sem í Bandaríkjunum.
Froskurinn Pepe byrjaði sem saklaus karakter úr teiknimyndasögu en hefur á lygilegan hátt verið dreginn inn í sjálfar forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Kosningabaráttan í Bandaríkjunum hefur verið ansi litrík og sérstaklega í kringum Donald Trump, forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins, sem hefur ekki verið feiminn við að láta út úr sér stórkarlalegar yfirlýsingar. Skrítnasta útspil baráttunnar hefur þó vafalaust verið það þegar Hillary Clinton og hennar teymi lýstu því yfir að internet meme-ið Pepe the frog, teikning af froski í ýmsum aðstæðum, væri haturstákn og í kjölfar yfirlýsingarinnar tóku samtökin Anti-Defamation League undir með forsetaframbjóðandanum og settu Pepe á lista með táknum eins og sjálfum hakakrossinum.Hvaðan kemur Pepe? Pepe er teiknimyndafroskur í mannsmynd sem upphaflega birtist í teiknimyndasögusyrpunni Boy‘s Club sem hóf göngu sína árið 2005. Teiknimyndasögurnar fjalla um nokkra félaga sem búa saman og eyða tíma sínum aðallega í að nota eiturlyf og láta barnalega. Frasinn „feels good man“ ásamt myndum af Pepe fóru fljótlega að verða vinsælar á spjallborðinu 4chan þar sem meðlimir þess notuðu hann til að tjá tilfinningar sínar. Alls kyns útgáfur af Pepe fóru að verða til og 4chan-notendur voru fljótlega farnir að teikna eigin útgáfur af froskinum. Tíu árum síðar var Pepe enn þá í notkun á internetinu en eins og ýmislegt sem er grínast með á 4chan var Pepe löngu sloppinn þaðan út og kominn í umferð hér og þar – Pepe var orðinn að allsherjar meme-i, meðal annars hafa Katy Perry og Nicki Minaj notað hann á Twitter – 4chan notendum til mikils ama.Donald Pepe Trump.Pepe og Alt-right hreyfingin Ef það er eitthvað sem notendur 4chan hafa gaman af þá er það að „trolla“ og fljótlega fór Pepe að skarta hakakrossinum, myndir tóku að birtast af honum í útrýmingarbúðum og hann almennt farinn að vera settur í hatursfullt samhengi. Líklega var þetta gert til að láta fræga fólkið og aðra sem voru að misnota (að mati 4hcan) Pepe líta illa út. Fljótlega var Pepe þó kominn í mikla notkun hjá stuðningsfólki Trumps og öðrum úr hinni svokölluðu „Alt-right“ hreyfingu sem notaði hann til að tjá skoðanir sínar sem oft vilja vera ansi hatursfullar. Pepe var skyndilega kominn með hár eins og Trump og básúnaði skoðanir frambjóðandans og hans stuðningsmanna. Donald Trump Jr., sonur Trumps, póstaði meme-inu meira að segja á Instagram-síðu sína og var gagnrýndur harðlega fyrir. Það má telja líklegt að stuðningsmenn Trumps og 4chan-notendur hafi orðið nokkuð ánægðir með það þegar Hillary sjálf beindi athyglinni að þeim með því að taka Pepe, af öllum hlutum, fyrir, enda er það í eðli þessara hópa að sækjast eftir því að fá frægt fólk, og þá sérstaklega fólk sem þeim líkar illa við, til að sýna viðbrögð – það er lokamarkmið þess að „trolla“. Matt Furie, sem upphaflega teiknaði Pepe, er þó ekki jafn ánægður. Hann hefur komið fram í viðtölum þar sem hann segist vera stuðningsmaður Hillary Clinton og hefur töluverðar áhyggjur af uppgangi Alt-right hreyfingarinnar. Hann hefur þó ekki áhyggjur af notkun hreyfingarinnar á Pepe og telur að það sé bara tímabundið enda sé karakterinn saklaus og skemmtilegur í eðli sínu.Internetið getur verið svo undarlegt.Orðabók 4chan er spjallborð á internetinu þar sem notendur njóta nafnleyndar. Spjallborðinu er skipt upp í alls kyns svæði þar sem flest milli himins og jarðar er rætt. Spjallborðið tengist að því er virðist nánast öllu sem á sér stað á internetinu, bæði góðu og slæmu, þó að hið slæma virðist oft vera meirihlutinn – enda er ýmislegt mögulegt í skjóli nafnleyndar. Í stuttu máli er internet-meme athæfi, hugmynd, frasi eða einhvers konar mynd, texti, myndband sem dreifist um internetið og líkt er eftir og sett í alls kyns útgáfur hér og þar. Góð dæmi um þekkt meme sem náðu meðal annars dreifingu hér á landi eru að planka og Harlem Shake. Sá sem trollar er oftast að reyna að byrja rifrildi eða einhvers konar leiðindi með því að senda frá sér móðgandi fullyrðingar eða annað í þeim dúr og er markmiðið yfirleitt það að reita fólk til reiði og skemma umræðu.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Lífið Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Menning Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið Atli Steinn fann ástina á ný Lífið Stjörnurnar skinu skært á sögulegum sjónvarpsverðlaunum Lífið „Get ekki gengið óstudd og framundan er mikil endurhæfing“ Lífið „Síðasta flugtak“ Play í Gamla bíói Lífið Fundin eftir sjö vikur á vergangi: „Takk hver sem þú ert“ Lífið Heillandi raðhús Evu Maríu og Trausta til sölu Lífið Fleiri fréttir Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Heillandi raðhús Evu Maríu og Trausta til sölu Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Fundin eftir sjö vikur á vergangi: „Takk hver sem þú ert“ Fresta hrekkjavöku til að tryggja öryggi lítilla skrímsla Stjörnurnar skinu skært á sögulegum sjónvarpsverðlaunum Atli Steinn fann ástina á ný „Síðasta flugtak“ Play í Gamla bíói Már Gunnars genginn út Verk Þórdísar Erlu munu prýða auglýsingaskilti borgarinnar Steingleymdi að taka niður sólgleraugun Hvenær má byrja að spila jólalög? Stílhrein og stílíseruð útsýnisíbúð við Heiðmörk Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ „Get ekki gengið óstudd og framundan er mikil endurhæfing“ Ótrúlegur bílskúr Hönnu Rúnar: „Hvar ertu?“ Lét flúra brúðkaupsdaginn á sig en gerði mistök Sviti, mjólk og hóstakast eftir að hafa manað hvor annan Yfir 170 góðgerðafélög hlutu styrk í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Sigurjón og Sóley gjörbreyttu eldhúsinu með einstakri útkomu „Alvöru“ jólasveinn gisti á Hótel Rangá Fasteignasalar og ofurskvísur í Októberfest stemningu Eitt glæsilegasta hús Reykjavíkur til sölu „Þetta er það fallegasta sem einhver hefur sagt um mig“ Hvað þýðir „six-seven“? Smáforrit til að deila heimilisverkum: „Fæ þrjú stig fyrir að þurrka af á heimilinu“ Kynslóðabilið kom í ljós þegar umræðan beindist að blautbolakeppni Ljúffengar banana- og kakóbollakökur í nestisboxið Troðningur á yfirfullri opnun: „Þetta var svolítið kreisí“ Pétur Kr. og Ingibjörg selja 270 fermetra eign við Ægisíðu Sjá meira