Aron Elís: Ætlum okkur alla leið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. október 2016 18:48 Aron Elís var mjög öflugur í seinni hálfleik. vísir/ernir
Aron Elís Þrándarson sneri aftur á sinn gamla heimavöll í dag þegar íslenska U-21 árs landsliðið lagði Skota að velli, 2-0, í undankeppni EM 2017. Aron Elís, sem er uppalinn Víkingur, kom Íslandi á bragðið þegar hann skoraði eftir aukaspyrnu Böðvars Böðvarssonar í upphafi seinni hálfleiks. „Þetta var það sem við stefndum að. Við ætluðum að vinna þennan leik og komast í úrslitaleik um sæti á EM,“ sagði Aron Elís í samtali við Vísi eftir leik. Aðstæður voru afar erfiðar í dag og frammistaða íslenska liðsins í fyrri hálfleik var ekki góð. En hvað breyttist í seinni hálfleik? „Það var smá skrekkur í okkur í fyrri hálfleik og þetta var erfitt í vindinum og boltinn var mikið út af. En í seinni hálfleiknum vorum við miklu betri og hefðum getað skorað fleiri mörk,“ sagði Aron Elís. „Það var mikilvægt að fá mark snemma í seinni hálfleik því við vissum að við værum á móti erfiðum vindi. Ég hafði alltaf trú á því að við værum að fara að klára þetta, jafnvel þegar þeir fengu vítið,“ sagði Aron Elís og vísaði til vítaspyrnunnar sem Rúnar Alex Rúnarsson varði skömmu eftir að hann kom Íslandi yfir. „Þetta var frábær tímasetning og eftir það fannst mér við allir gefa mikið í. Okkur langaði þetta mikið.“ Framundan er leikur gegn Úkraínumönnum á þriðjudaginn og með sigri þar tryggir Ísland sér sæti á EM í Póllandi á næsta ári. „Við ætlum okkur alla leið. Við sögðum það í upphafi undankeppninnar og nú erum við komnir í úrslitaleik. Það verður bara spennandi,“ sagði Aron Elís að endingu.
Fótbolti Mest lesið Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Sport KSÍ dregur úr verðhækkunum Íslenski boltinn Vann troðslukeppnina með látum Körfubolti Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Körfubolti Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport Fleiri fréttir Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum KSÍ dregur úr verðhækkunum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Mark dæmt af Orra á Bernabéu Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Sandra María mátti sætta sig við tap gegn sínu gamla liði Valgeir náði mikilvægum áfanga eftir krefjandi tíma Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Sjá meira