Lærisveinar Ólafs björguðu stigi gegn Bröndby | Fjórði sigur Álasund í röð Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. október 2016 18:15 Ólafur Kristjánsson. vísir/getty
Lærisveinar Ólafs Kristjánssonar í Randers nældu í stig á útivelli gegn Bröndby með 2-2 jafntefli eftir að hafa lent 0-2 undir í fyrri hálfleik. Landsliðsmennirnir Hannes Þór Halldórsson og Hjörtur Hermannsson mættust í leiknum í dag en báðir léku þeir allar 90. mínútur leiksins. Kamil Wilczek og Hany Mukhtar komu Bröndby 2-0 yfir í fyrri hálfleik en Mikkel Kallesoe og Mikael Ishak náðu að jafna metin fyrir Randers í seinni hálfleik. Var þetta þriðja jafntefli Randers í síðustu fjórum leikjum en eftir góða byrjun á tímabilinu hefur Randers aðeins náð þremur stigum af tólf í síðustu fjórum leikjum. Í Noregi voru Íslendingarnir í sigurliði í dag en Álasund vann í dag fjórða leik sinn í röð og fjarlægist falldrauginn með hverri umferð. Aron Elís Þrándarson, Adam Örn Arnarsson og Daníel Leó Grétarsson léku allir nítíu mínútur í dag en hollenski kantmaðurinn Edwin Gyasi skoraði eina mark leiksins. Þegar fjórar umferðir eru eftir er Álasund fimm stigum frá fallsæti í 10. sæti norsku deildarinnar. Molde með Björn Bergmann Sigurðarson innanborðs komst aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð en Aron Sigurðarson kom inn af bekknum fyrir Tromsö í 2-0 sigri Molde. Þá vann Rosenborg 3-1 sigur á heimavelli gegn Valerenga en Hólmar Örn Eyjólfsson, Guðmundur Þórarinsson og Matthías Vilhjálmsson voru allir í byrjunarliði norsku meistaranna. Hólmar lék allar 90. mínúturnar en Matthías og Guðmundur voru teknir af velli undir lok leiksins án þess að hafa skorað mark.
Fótbolti Mest lesið Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Sport KSÍ dregur úr verðhækkunum Íslenski boltinn Vann troðslukeppnina með látum Körfubolti Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Körfubolti Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport Fleiri fréttir Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum KSÍ dregur úr verðhækkunum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Mark dæmt af Orra á Bernabéu Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Sandra María mátti sætta sig við tap gegn sínu gamla liði Valgeir náði mikilvægum áfanga eftir krefjandi tíma Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Sjá meira