Lífið

Tilfinningarnar báru Brynju ofurliði á Sri Lanka: „Mig langar að heyra hana segja nafnið mitt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Saga Brynju Dan er mögnuð.
Saga Brynju Dan er mögnuð.
Þátturinn Leitin að upprunanum hóf göngu sýna á Stöð 2 í gær. Í fyrsta þættinum var farið yfir magnaða sögu Brynju Dan. Í þessari frétt koma fram upplýsingar um þáttinn og hvernig málin hafa þróast hjá Brynju en hún leitar af líffræðilegri móður sinni. Ef þú átt eftir að horfa á þáttinn ættir þú að hætta að lesa lengra.......

.

.

.

.

„Ég hef kannski ekki áhyggjur af neinu en ég veit samt ekki alveg hvar ég á að staðsetja þau,“ segir Brynja M. Dan Gunnarsdóttir sem var ættleidd frá Sri Lanka fyrir þrjátíu árum. Fjallað var um sögu hennar í þáttunum Leitin að upprunanum sem hóf göngu sína á Stöð 2 í gærkvöldi.



Þátturinn í gær vakti gríðarlega mikla athygli og sagði Brynja sögu sína. Í ljós kom í þættinum að 18 ára stóð Brynja eftir foreldralaus, en móðir hennar og faðir létust bæði fyrir aldur fram. Núna leitar hún að líffræðilegri móður sinni, með aðstoð Sigrúnar Óskar Kristjánsdóttur sem er umsjónarmaður þáttanna.

Í þættinum í gær kom í ljós að móðir Brynju er á lífi og vill hún gjarnan hitta líffræðilega dóttur sína. Fyrir liggur því ferðalag til Sri Lanka og verður það til umfjöllunar í næsta þætti eftir viku.

„Ég veit ekkert hvort þau séu með iPad inni á klósetti til að sturta niður og allt voða hátæknilegt eða hvort það sé bara api eða ljón inni á klósetti hjá þeim. Ég hef ekki hugmynd um hvar á skalanum þau eru,“ segir Brynja. Hér að neðan má sjá brot úr þættinum sem var á dagskrá í gær og einnig má sjá atriði úr næsta þætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×