Lífið

Gamalt lag Janet Jackson nýtur vaxandi vinsælda vegna orða Trumps

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Ætli Trump hafi tryggt sér atkvæði Janet með þessari tekjuaukningu?
Ætli Trump hafi tryggt sér atkvæði Janet með þessari tekjuaukningu? Vísir
Söngkonan Janet Jackson er afar sátt við Donald Trump þessa daganna. Það er til komið vegna þess að orð sem forsetaefni Repúblíkanaflokksins lét falla í síðustu kappræðunum við andstæðing sinn Hillary Clinton. Þar sagði Donald andstæðing sinn vera “such a nasty woman” eða “afar andstyggilega konu” eftir að hún skaut á hann fyrir að hafa komið sér undan að borga skatta til margra ára.

Þetta varð til þess að fjöldi fólks streymdi lagi hennar Nasty á tónlistarveitum netsins. Spotify tísti um málið á Twitter síðu sinni og tilkynnti að hlustun á lagið hefði aukist um 250% síðan Trump skaut á Clinton á miðvikudaginn.

Ekki er vitað hvort Janet Jackson styðji Trump til forseta eður ei.

Hér fyrir neðan má heyra og sjá umræddan slagara frá Janet en lagið kom út árið 1986.


Tengdar fréttir

Obama segir ummæli Trump hættuleg

Barack Obama Bandaríkjaforseti segir það hættulegt af Donald Trump forsetaframbjóðanda að neita að gefa það út fyrirfram að hann muni una niðurstöðum forsetakosninganna í nóvember.

Fátt kemur í veg fyrir sigur Clinton

Donald Trump hefur ekki getað nýtt sér þrennar sjónvarpskappræður til að bæta stöðu sína. Bilið á milli hans og Hillary Clinton breikkar jafnt og þétt. Kappræðurnar milli forsetaefnanna hafa allar verið hatrammar. Kosið verður 8. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.