Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 97-91 | Keflvíkingar með frábæra endurkomu Guðmundur Steinarsson í TM-höllinni skrifar 7. nóvember 2016 21:00 Reggie Dupree var flottur í kvöld. vísir/anton
Keflvíkingar eru komnir áfram í sextán liða úrslit Maltbikarsins í körfubolta eftir sex stiga endurkomusigur á nágrönnum sínum í Njarðvík, 97-91, í Keflavík í kvöld. Var Keflavík sterkari í seinni hálfleik og slógu granna sína út úr bikarnum. Það virtist vera skjálfti leikmönnum liðanna í upphafi. Leikmönnum gekk illa að hitta og voru þar að auki að brjóta klaufalega af sér. Stevens lenti í villuvandræðum eftir rúmar þrjár mínútur enda kominn strax með 3 villur. Við þetta riðlaðist leikur Keflavíkinga. Það tók Njarðvík þó smá tíma að nýta sér þessa stöðu sem upp var komin. Gestirnir gengu þó á lagið í öðrum leikhluta og juku forskot sitt jafnt og þétt með Bonneau fremstan í flokki. Bonneau setti 17 stig í fyrri hálfleik. Keflavík var í miklum vandræðum á þessum tímapunkti. Reggie Dupree hélt heimamönnum inni í leiknum með góðri frammistöðu í fyrri hálfleik, en hann var með helming stiga Keflvíkinga eða 22 stig af 44. Njarðvík var með myndarlegt forskot að loknum fyrri hálfleik, 44-57. Umskiptin í þriðja leikhluta voru mikil. Njarðvík hóf seinni hálfleikinn betur en Keflavík tók þá gott áhlaup og gerði sér lítið fyrir og komst yfir. Unnu Keflvíkingar upp forskot gestanna og enduðu þriðja leikhluta með fjögurra stiga forskot. Heimamenn unnu því þennan leikhluta, 29-12. Varnleikurinn var frábær og fengu þeir margar auðveldar körfur úr hraðupphlaupum. Munaði mestu um að Amin Stevens var kominn aftur á völlinn. Lokafjórðungurinn var fjörugur. Keflavík hélt þó forystunni allan tímann en Njarðvíkingar komust nokkrum sinnum í ákjósanlega stöðu til að jafna leikinn en nýttu sér það ekki, boltinn vildi ekki ofan í. Það fór því svo að Keflavík vann leikinn, 97-91, í hörkuleik sem hafði upp á allt að bjóða.Af hverju vann Keflavík? Keflvíkingar unnu á góðum varnarleik og baráttunni í þriðja leikhluta. Njarðvík var komið í góða stöðu í hálfleik. Leikurinn var búinn að spilast eins vel fyrir þá og hægt var. Þegar Keflavík gerði áhlaup strax eftir fyrri hálfleikinn þá voru gestirnir einfaldlega ekki tilbúnir. Náðu ekki að spyrna sér til baka og lentu í eltingarleik við heimamenn. Á sama tíma gekk allt upp hjá Keflavík og stemmningin var þeirra.Bestu menn vallarins Reggie Dupree var maður leiksins. Hann hélt Keflavík á floti í fyrri hálfleik með frábærum leik. Hann steig upp þegar Stevens lenti í villuvandræðum. Dupree endaði með tvöfalda tvennu, 28 stig og 11 fráköst, sem er frábært hjá bakverði. Guðmundur Jónsson átti líka virkilega góðan leik. 13 stig og 10 fráköst. Hjá Njarðvík var Bonneau allt í öllu með 27 stig. Logi stóð fyrir sínu að vanda.Tölfræði sem vakti athygli Frákastabaráttan vakti athygli en Keflavík vann hana og tók 10 fleiri sóknarfráköstum en grannar sínir úr Njarðvík. Heimamenn tók 50 fráköst í leiknum og voru það „litlu“ mennirnir sem áttu helminginn af þeim. Heimamenn voru öflugir á vítalínunni í síðasta leik en ekki í kvöld þegar þeir brenndu af 11 vítaskotum.Hvað gekk illa Mönnum gekk illa að halda sér inná vellinum. 4 leikmenn fengu 5 villur í kvöld. Stevens og Guðmundur Jónsson hjá Keflavík og Páll Kristins og Hjörtur hjá Njarðvík. Stevens var kominn í villuvandræði í byrjun leiks og hefði Njarðvík átt að nýta það betur. Páll og Hjörtur eru einmitt þeir menn sem hefðu geta nýtt sér það. Svo er kannski ósanngjarnt að setja frammistöðu liðs á herðarnar á tveimur mönnum sem eru nýbyrjaðir að æfa aftur. Njarðvík vantar sárlega leikmann inni í teig sem getur látið til sín taka. Hjörtur getur það þegar hann er kominn í betri æfingu. Það er samt dýru verði keypt þegar annar af stóru titlunum er runninn þeim úr greipum.Guðmundur: Tók tíma að finna taktinn Guðmundur Jónsson, leikmaður Keflavíkur, var eðlilega ánægður með sigurinn í kvöld og segir að um hörkuleik hafi verið að ræða á milli grannliðanna í Reykjanesbæ. „Það er synd að þetta skuli vera í 32-liða úrslitunum. Það hefði verið skemmtilegra að hafa þetta nær úrslitaleiknum,“ sagði Guðmundur við Vísi eftir leikinn í kvöld. Bandaríkjamaðurinn Amir Stevens lenti í villuvandræðum snemma leiks í kvöld og voru Keflvíkingar því í basli í fyrri hálfleik. „Það tók tíma að finna taktinn en við komum sterkir til leiks í síðari hálfleik og þá kom Stevens líka til baka sem var gott,“ sagði Guðmundur sem vildi ekki gagnrýna dómgæsluna þó svo að talsvert hafi verið flautað í leiknum. „Þeir tóku þessa línu og héldu henni út leikinn. Það hefði vissulega mátt leyfa aðeins meira,“ sagði Guðmundur sem sagði að það hefði ekki hallað á annað liðið í dómgæslunni.Hjörtur: Löguðum bæði vörn og sókn í seinni hálfleik Hjörtur Harðarson, þjálfari Keflavíkur, var að vinna Njarðvík í annað skipti á þessu tímabili. Hann sagði sigurinn frábæran en að það hafi verið erfitt að missa Stevens í upphafi leiksins vegna villuvandræða. „Við vorum ragir og ekki nægilega kraftmiklir í fyrri hálfleik. En við löguðum bæði vörn og sókn í þeim síðari,“ sagði Hjörtur sem lofaði frammistöðu Reggie Dupree, sem og annarra leikmanna í Keflavík. „Hann lagði sig fram eins og allir sem komu inn á. Þeir voru samstíga um að gera þetta saman,“ sagði Hjörtur sem var ánægður með að dómgæslan hafi ekki ráðið úrslitum í leiknum. „Leikmenn eiga að fá að klára svona leiki,“ sagði Hjörtur sem sagðist vilja fá heimaleik í næstu umferð Maltbikarsins.Daníel: Ömurlegt að tapa þessum leik Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var fámáll eftir tap liðins gegn Keflavík í kvöld. „Það er bara ömurlegt að tapa þessum leik,“ sagði Daníel. Njarðvík var með fínt forskot í hálfleik, við spurðum Daníel hvað hafi gerst í þriðja leikhluta? „Við stjórnuðum leiknum fyrstu 20 mínúturnar en það eru seinni 20 mínúturnar sem gilda,“ sagði Daníel og bætti við: „Við vissum þeir kæmu grimmir inní seinni hálfleik á sínum heimavelli og þeir ná stjórninni á leiknum fljótlega í þriðjaleikhluta“. Daníel sagði að sínir menn hefðu gefið þessu séns en það hefði ekki dugað til. Spurður út í dómara leiksins hafði Daníel þetta að segja „Mér fannst þetta alveg í lagi en þeir hefðu mátt halda áfram á sömu braut í seinni hálfleik. Þá breyttist þetta en stundum er þetta svona,“ sagði Daníel. Njarðvík lét annan af erlendu leikmönnum sínum fara fyrir nokkrum dögum, er við spurðum Daníel hvort von væri á öðrum leikmann sagði hann: „Já, en það næst líklegast ekki fyrir næsta leik“.Logi: Það lið sem á síðasta áhlaupið nær oft að vinna Logi Gunnarsson, fyrirliði Njarðvíkur, stóð fyrir sínu í liði Njarðvíkinga í kvöld. „Við komum útúr hálfleiknum frekar góðir, bættum aðeins við forskotið. En svo kom áhlaup frá Keflavík sem við stóðumst ekki“ sagði Logi um leik sinna manna og bætti við „í svona leikjum skiptast liðin á að gera áhlaup og það lið sem á síðasta áhlaupið nær oft að vinna“ . Voru leikmenn værukærir í hálfleik fyrst að liðið var með gott forskot og Stevens í villuvandræðum? „Ég veit það ekki, mér fannst við spila ágætlega á hann. Það voru aðrir sem voru að spila ágætlega þegar Stevens var útaf og þeir héldu því áfram þótt að hann væri kominn inná“ sagði Logi. „Keflavík er með góða leikmenn og liðið stendur ekki endilega og fellur með Stevens. Ég held að við höfum ekki vanmetið Keflavík þannig að þeir gætu ekkert án hans,“ sagði Logi. Spurður út í dómara leiksins og hvort þeir hefðu mátt leyfa meira í leiknum hafi Logi þetta að segja „Jú auðvitað á að leyfa leiknum aðeins að flæða þegar þeir vita að það er harka. Leikurinn nær ekkert að ganga ef það er flautað í hvert skipti en það var flautað á báða bóga og svona er þetta bara. Mér fannst jafnt dæmt og dómararnir ágætir í kvöld“. Loga fannst bæði súrt að spila svona stóran leik í 32-liða úrslitum eins og það er gaman að fá svona alvöru leik snemma í keppninni. „Stundum hefur maður spilað í bikarnum og ekki fengið svona leik og svo bara dottið út en við nutum þess að spila hérna í dag,“ sagði Logi Gunnarsson.Textalýsingin: Keflavík - NjarðvíkTweets by @Visirkarfa1
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti Fleiri fréttir LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 125-87 | Meistararnir völtuðu yfir Stólana „Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“ Uppgjörið: Njarðvík - Álftanes 101-96| Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir heimamenn Uppgjör og viðtöl: ÍA - KR 98-120 | Fjórði sigur KR-inga í röð Uppgjör og viðtöl: Grindavík - Valur 78-67 | Áfram fullkomnir á heimavelli Uppgjör og viðtal: Ármann - ÍR 74-109 | Fóru létt með kanalausa Ármenninga Valur og KR styrkja sig rétt fyrir lok gluggans Uppgjörið: Valur - Haukar 90-97 | Fimm í röð hjá Haukum Umfjöllun og viðtöl: Grindavík 74-79 KR | Risastór sigur KR Doncic skoraði 46 stig en þjálfarinn segir hann reyna á þolinmæðina Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 98-81 | Keflvíkingar skelltu Stólunum „Miklu skemmtilegra að spila körfubolta þegar fólkið er í húsinu“ Martin fagnaði eftir framlengingu Rose hengdur upp í rjáfur í Chicago Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Tryggvi og félagar sluppu með skrekkinn á móti botnliðinu NBA-leik frestað vegna óeirða í Minneapolis Elvar og félagar köstuðu frá sér sigrinum Njarðvík nær í nýjan miðherja eftir meiðslin Körfuboltakvöld: Betra að temja villtan leikmann en að vera með einhverja rolu Sjá meira