Janet Reno látin Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 7. nóvember 2016 11:24 Reno varð fyrsta konan til að gegna embætti dómsmálaráðherra í Bandaríkjunum. Vísir/Getty
Janet Reno, fyrsta konan til að gegna embætti dómsmálaráðherra í Bandaríkjunum er látin, 78 ára að aldri. Reno þjáðist af Parkinsons-veiki og lést á heimili sínu í Miami vegna fylgikvilla sjúkdómsins. Reno gegndi embætti dómsmálaráðherra í forsetatíð Bill Clinton á árunum 1993 til 2001 og gegndi því embætti lengur en nokkur annar á 20. öldinni. Reno þótti öflugur ráðherra sem var þó aldrei hluti af innsta hring Clinton. Hún mátti þó glíma við ýmis erfið mál sem dómsmálaráðherra og var hún helst gagnrýnd fyrir að árás bandarísku alríkislögreglunnar FBI á sértrúarsöfnuð í Waco í Texas árið 1993. Þá þótti ákvörðun hennar um að heimila alríkislögreglumönnum að fjarlægja Elian Gonzales, kúbverskan dreng, af heimili sínu í Flórída svo flytja mætti hann til föðurs síns á Kúbu, umdeild. Eftir að hún lét af embætti dómsmálaráðherra bauð hún sig gegn Jeb Bush, ríkisstjóra Flórida, en þurfti að lúta í lægra haldi. Reno fæddist 21. júlí 1938 og var elst fjögurra systkina. Hún útskrifaðist frá Cornell með gráðu í efnafræði og nam lögfræði við Harvard.
Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Erlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Fleiri fréttir Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Sjá meira