Müller fékk að heyra það frá San Marinó Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. nóvember 2016 09:00
Forráðamenn knattspyrnusambands San Marínó hafa krafið Thomas Müller, sóknarmann þýska landsliðsins, um afsökunarbeiðni. Þýskaland vann 8-0 sigur á San Marínó í undankeppni HM 2018 á föstudag en eins og gefur að skilja átti landslið smáríkisins ekki roð í heimsmeistarana. Müller sagði eftir leikinn lið eins og Þýskaland ætti ekki að spila gegn liði eins og San Marínó - „áhugamannaliði,“ eins og hann orðaði það sjálfur. Það eina sem leikurinn fæli í sér væri meiðslahætta fyrir leikmenn Þýskalands. Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern München, tók undir þessa gagnrýni og sagði að San Marínó ætti ekkert skylt við atvinnumannaknattspyrnu. Teodoro Lonfernini, íþróttamálaráðherra San Marínó, hefur kallað eftir formlegri afsökunarbeiðni frá Müller vegna ummæla hans eftir leikinn. „Þýskaland er heimsmeistari en þeir eru alráðir í heiminum,“ sagði Lonfernini. Alan Gasperoni, talsmaður Ólympíunefndar San Marínó, tjáði sig um málið á Facebook-síðu sinni og bauð fram tíu ástæður þess að leikurinn hefði átt að fara fram. Og hann skaut líka á Müller sem hefur ekki enn afrekað að skora á tímabilinu, hvorki fyrir Bayern né landsliðið. „Þú getur ekki einu sinni skorað gegn jafn lélegu liði og okkar. Ekki reyna að halda því fram að þú hafir ekki verið pirraður þegar markvörður okkar varði frá þér,“ sagði Gasperoni. „Þetta sýndi líka að fótbolti tilheyrir þeim sem elska íþróttina og við erum hluti af því, hvort sem þér líkar við það eða ekki.“
Fótbolti Tengdar fréttir Fyrsti Þjóðverjinn í 40 ár sem skorar þrennu í fyrsta landsleiknum Serge Gnabry fékk draumabyrjun hjá þýska landsliðinu í kvöld þegar hann skoraði þrennu í8 8-0 sigri Þýskalands á San Marinó í undankeppni HM 2018. 11. nóvember 2016 22:30 Mest lesið „Það var eins og við værum á heimavelli“ Sport „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Fótbolti Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Íslenski boltinn Brottvísun af ÓL stendur: Áfrýjun Úkraínumannsins vísað frá Sport Dramatík í Suðurnesjaslag Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski bikarinn á sviðið Sport Elín Klara með sex mörk í mikilvægum sigri Handbolti Fleiri fréttir Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Sandra María mátti sætta sig við tap gegn sínu gamla liði Valgeir náði mikilvægum áfanga eftir krefjandi tíma Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara Raheem Sterling fann griðastað í liði Van Persie „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Atlético burstaði Barcelona í undanúrslitum Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Elías hélt hreinu í undanúrslitum Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Neymar gaf sonum Messi Santos-treyju Ensku Evrópumeistararnir spila tímamótaleik á Laugardalsvellinum Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ ICE-sveitin verður í lykilhlutverki í öryggisgæslu á HM í Bandaríkjunum Frestuðu leik vegna meiðsla Lionel Messi Hélt hreinu á móti Íslandsmeisturunum og stjórnaði sigursöng eftir leik Tuchel sagður ætla að framlengja samning sinn Sjá meira
Fyrsti Þjóðverjinn í 40 ár sem skorar þrennu í fyrsta landsleiknum Serge Gnabry fékk draumabyrjun hjá þýska landsliðinu í kvöld þegar hann skoraði þrennu í8 8-0 sigri Þýskalands á San Marinó í undankeppni HM 2018. 11. nóvember 2016 22:30