„Ég held mikið upp á jólin, elska ilminn af kanil og að spila jólalög út í eitt,“ segir hin svissneska Sara Hochuli sem nýlega hefur opnað skemmtilegt japanskt tehús úti á Granda í húsnæði Grandakaffis.
Sara Hochuli er kökulistakona sem rekur japanskt te- og kökuhús úti á Granda. Hún gefur hér uppskrift að útfærslu af klassískum svissneskum piparkökum.

„Ég held iðulega upp á jólin með mömmu og pabba í Sviss. Í ár mun ég hins vegar eyða jólunum í Póllandi með tengdaföður mínum og fjölskyldu hans,“ segir Sara og segist, fyrir utan ljúfar samverustundir með fjölskyldunni með góðum mat og drykk, kunna best að meta svefninn um jólin.
„Það er yndislegt að geta sofið að vild yfir jólahátíðina. Í mörg ár hef ég þurft að vinna mjög mikið dagana fyrir jól með tilheyrandi svefnleysi. Það er því best í heimi að geta slakað á og að eyða stundum með ástvinum.“
Klassískur jólamatur hjá Söru í Sviss er fondue chinoise. „Það er kjöt og grænmeti í söltu soði sem við borðum með brauði og heimalöguðum sósum að hætti mömmu minnar. Mér finnst líka gaman að fá raclette um hátíðirnar en það er besti ostaréttur í heimi.“
Sara gefur lesendum Jólablaðsins uppskrift að Lebkuchen-köku með brenndu sykurkremi. „Þetta er blanda af hefðbundnum svissneskum piparkökum og minni eigin túlkun á þeim, með karamellukremi.“

Jólakaka með brenndu sykurkremi
Kakan
200 g mjúkt smjör
200 g hveiti
200 g sykur
1 tsk. kanill
½ tsk. negull
½ tsk. allspice
1 tsk. engifer
1 appelsína, bæði hýði og safi
100 g hakkaðar möndlur
1 msk. matarsódi
1 tsk. salt
5 egg
Bakið í 30-40 mínútur við 150 gráður. Skerið kökuna í tvennt og fyllið með smjörkremi.
Krem
200 g sykur
200 g heit mjólk
200 g smjör
½ tsk. salt
Karamellið sykurinn á teflonpönnu þar til hann er orðinn dökkbrúnn, ekki hræra of mikið. Kælið hægt með heitri mjólki en farið varlega, sykurinn er heitur. Látið sykur og mjólk malla í 20 mínútur þar til karamellan er orðin bráðin á ný. Kælið dálítið.
Blandið smjöri og salti saman við og þeytið þar til blandan verður fislétt. Setjið kremið á milli kökubotnanna og allt í kringum kökuna. Skreytið að geðþótta.