Hildur segir þessa nýju línu vera nokkuð frábrugðna eldri línum en í henni leynast meðal annars kápur, kjólar og hátíðlegt skart.
Það er alltaf jafn mikil spenna sem fylgir því að taka upp nýju línu að sögn Hildar enda liggur mikil vinna að baki nýrri línu.


„Fólkið sem er í þessum bransa er svo skemmtilegt, ég er að vinna með mörgum af mínum bestu vinum. Einnig er fjölbreytnin frábær, það eru engir tveir dagar eins.“
Hildur segir nýjustu línu sína vera nokkuð frábrugðna fyrri línum.
„Þetta er nýr heimur sem ég er að vinna með, draumaheimurinn. Eins eru þetta ný snið, ný prent og ný efni, svo sem prentuð ullarefni, glimmerefni og plíseruð pils úr pvc-efni svo eitthvað sé nefnt. Svo bjó ég til nýjar týpur af skarti sem henta vel fyrir hátíðarnar,“ segir Hildur um þessa nýju fjölbreyttu línu.
„Þema línunnar var staðurinn á milli svefns og vöku. Transcendence er augnablikið þegar þú stendur á brún ímyndunaraflsins og lygnir aftur augunum og lætur þig líða inn á lendur hins óraunverulega. Bæði fannst mér þetta spennandi ástand til að rannsaka og svo er tíska í mínum huga mikill draumaheimur, svo það lá beint við að ég skoðaði þetta fyrirbæri sem við könnumst svo vel við,“ útskýrir Hildur.
Áhugasömum er bent á að fylgjast með Hildi á Instagram undir notendanafninu hilduryeoman. Þar er Hildur dugleg að birta myndir af þeim margvíslegu verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur.