Lífið

Skaupið sökkaði og Magnús Scheving fótbraut pabba

Hulda Hólmkelsdóttir og Stefán Árni Pálsson skrifa
Í Poppkasti vikunnar er farið yfir víðan völl og meðal annars rætt um Áramótaskaupið og fréttir vikunnar í Lífinu.

Þar mátti helst nefna fallegt bónorð Magnúsar Scheving á veitingarstaðnum ROK og trúloftum Mörtu Maríu og Páls Winkel.

Jólaauglýsing Icelandair reyndist eftir allt saman vera sönn og er heldur betur um magnaða tilviljun að ræða.

Dagur B. Eggertsson er leynigestur RÚV árið 2017 og Home Alone og gamanþættirnir Friends tengjast á skemmtilegan hátt. Þetta og margt fleira í Poppkasti vikunnar en Hulda segir meðal annars frá skemmtilegri sögu þegar íþróttaálfurinn fótbraut pabba hennar.

Poppkastið er hlaðvarpsþáttur á Vísi. Umsjónarmenn þáttarins eru Stefán Árni Pálsson (@stebboinn) og Hulda Hólmkelsdóttir (@huldaholm). Í þættinum er farið yfir víðan völl í dægurmálafréttum, farið yfir fréttir vikunnar auk þess sem Stefán og Hulda fá til sín góða gesti til að ræða dægurmálin. Hér að neðan má hlusta á fimmta þáttinn af Poppkastinu sem kemur út alla föstudaga á Vísi. Poppkastið er aðgengilegt í hinum ýmsu hlaðvarpsþjónustum, t.a.m. iTunes.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.