Nýársspá Siggu Kling – Vatnsberinn: Þolir ekki neitt kjaftæði í kringum þig 6. janúar 2017 09:00
Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Þú ferð með svo dásamlega skemmtilega tölu inn í árið, það er talan 3 sem lýsir upp þetta tímabil fyrir þig. Hún táknar það að á komandi mánuðum verður mikið um skemmtanir, spennandi stutt viðfangsefni og þú getur komið öllu í gegn sem þú vilt og þessi orka fylgir þér fram á vorið. Þú munt hreinlega geisla af orku og þolir ekki neitt kjaftæði í kringum þig. Þú átt eftir að segja hlutina sem þig langar af ákveðni og þú munt segja sannleikann algjörlega umbúðalaust. Þú verður svo ánægður með þig og þetta er ár leiðtogans. Það þýðir að þú hrífur aðra með þér í auðmýkt og kemst þangað sem þú ætlar þér. Það eina sem þú þarft að vara þig á, sérstaklega þegar fer að hausta, er að reyna að stytta þér ekki leið að takmarkinu – því að 2017 gefur þér miklu meiri frið í hjarta ásamt sannri ást, sem ekki er hægt að segja að sé á hverju strái. Þessi ást kemur strax í ljós á fyrstu mánuðum ársins og hvað er betra heldur en það? Sönn ást þarf ekki alltaf að vera fólgin í ástarsambandi heldur tengist hún mörgu. Hún er hæsta orka sem hægt er að fá svo nýttu þér það, elskan mín. Þú átt eftir að dragast svo mikið að því dularfulla í veröldinni og átt eftir að finna hversu næmur þú ert. Til þess að þú tengir þessa krafta þína og náir sem mestum árangri andlega þarftu að fara út í náttúruna. Þú þarft að faðma móður Jörð. Þú átt eftir að stökkva léttilega yfir allar hindranir og þú átt eftir að koma með skemmtilegar nýjungar sem heilla fólkið í kringum þig. Það eina sem getur bundið þig niður og valdið þér kvíða eru áhyggjur af öðru fólki. Reyndu af öllum kröftum að sleppa út þessum áhyggjum því að þú getur ekki breytt tilverunni hjá öðrum og þú getur heldur aldrei breytt öðrum. Traust er rosalega mikilvægt orð á þessu ári. Bæði að þú getir treyst sjálfum þér og að þú getir treyst í ástinni og vináttunni. Það virðist vera að þegar líða tekur á árið ákveðir þú að fara í eitthvað miklu meira árið 2018 og ég vara þig pínulítið við að leggja of mikið á þig, að ætla að gera allt á of litlum tíma. Sú tilfinning virðist allsráðandi árið 2017 og þó ég eigi ekki að fara út í 2018 þá verður það vonandi til þess að þú passir að þú leggir ekki of miklar byrðar á þig og njótir þess að lifa í núinu. Fyrir þig vil ég segja að þetta ár verður eins og margir ólíkir dansar, mikið af óvæntum og spennandi tilbrigðum, eins og í ólíkum dönsum. Allt gerist mjög hratt á þessu ári og þá sérstaklega þinn andlegi þroski og jákvæð tenging við tilveruna og þú lærir með þessum magnaða krafti að þú getur fengið það sem þú vilt út úr lífinu. Því þú verður á svo miklu hærri tíðni en þú hefur verið á. Knús og klapp, Sigga Kling.Frægir Vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts mannauður, Hilmar Hafsteinsson ofurfasteignasali.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Fleiri fréttir Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sjá meira