Margmenni á bænastund fyrir Birnu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. janúar 2017 21:51 Margmenni var samankomið í Hallgrímskirkju í kvöld á bænastundinni. vísir/anton brink
Fjöldi fólks var samankominn á bænastund í Hallgrímskirkju í kvöld, sem haldin var til stuðnings fjölskyldu Birnu Brjánsdóttur, sem hvarf sporlaust á aðfaranótt laugardags í miðbæ Reykjavíkur. Bænastundin var haldin að frumkvæði fjölskylduvina fjölskyldu Birnu en þeir hafa verið með Sigurlaugu Hreinsdóttir, móðir Birnu í bænahóp. Athöfnin hófst klukkan 21:00 og mætti margmenni til kirkjunnar til að sýna fjölskyldu Birnu stuðning. Bænastundin var falleg og fór hún fram undir handleiðslu séra Bjarna Þórs Bjarnasonar og Sigurðar Árna Þórðarsonar, sóknarprests í Hallgrímskirkju. Björn Steinar Sólbergsson lék á orgel og Hallfríður Ólafsdóttir spilaði á þverflautu. Í samtali við Vísi segir Bjarni að bænastundin hafi verið vel sótt og hugljúf. „Kirkjan var troðfull, þetta var mjög falleg stund og það var mikill samhugur í fólki“ segir Bjarni en í lok stundarinnar var kveikt á kertum. „Hugurinn er hjá Birnu og hjá fólkinu hennar“ segir Bjarni sem segir að mikil samstaða hafi einkennt kvöldið. „Við höldum bara áfram að biðja fyrir henni og fjölskyldu hennar.“ Rannsókn lögreglu á hvarfi Birnu er í forgangi hjá lögreglu. „Kirkjan var troðfull, þetta var mjög falleg stund og það var mikill samhugur í fólki,“ segir séra Bjarni..Vísir/Anton Brink„Hugurinn er hjá Birnu og hjá fólkinu hennar.“Vísir/Anton Brink
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Fleiri fréttir Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagræðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Sjá meira