Björgvin Páll ekki sá eini sem varði þrjú víti á HM í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2017 17:15 Adam Malcher gat ekki fagnað sigri í gær. vísir/afp
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, varði öll þrjú víti spænska landsliðsins í fyrri hálfleik á leik þjóðanna á heimsmeistaramótinu í Frakklandi í gær. Björgvin Páll varð að sætta sig við að fá á sig eitt mark úr víti í seinni hálfleiknum en endaði með 75 prósent markvörslu í vítum í leiknum; þrjú víti varin af fjórum. Björgvin Páll varði víti frá Spánverjunum Valero Rivera, Alex Dujshebaev og Daniel Sarmiento. Valero Rivera var sá eini sem náði að skora hjá honum. Björgvin var þó ekki sá eini markvörðurinn sem varði þrjú víti á HM í gær því það gerði einnig pólski markvörðurinn Adam Malcher. Adam Malcher, sem er þrítugur markvörður pólska liðsins KPR Gwardia Opole, var í miklu stuði í leik Pólverja á móti Norðmönnum í Nantes. Malcher varði víti frá þeim Kristian Björnsen, Sander Sagosen og Kent Robin Tönnesen. Hann tók alls 3 af 7 vítum Norðmanna í leiknum, 43 prósent vítanna, og var því með mun lægri vítahlutfallsmarkvörslu en okkar maður. Þeir Björgvin Páll og Adam hafa varið sex af þeim tólf vítum sem markverðir hafa tekið á heimsmeistaramótinu til þessa. Rússinn Vadim Bogdanov varði tvö víti en engum öðrum markverði tókst að verja meira en eitt víti. Pólverjar eru með tvo nýja markverði á mótinu en þeir Slawomir Szmal og Piotr Wyszomirski, sem hafa markverðir liðsins á síðustu stórmótum eru hvorugir með að þessu sinni.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Sjá meira