Höttur snýr aftur í Domino's-deildina í kvöld Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. mars 2017 11:15 Viðar Örn Hafsteinsson er á leið með Hött aftur upp í efstu deild. vísir/ernir
Höttur frá Egilsstöðum snýr aftur í Domino´s-deild karla í körfubolta í kvöld en liðið getur tryggt sér sigur í 1. deildinni þegar það mætir Ármanni í íþróttahúsi Kennaraháskólans klukkan 19.15. Höttur er í efsta sæti 1. deildarinnar með 38 stig eftir 21 umferð af 24 en liðið er búið að vinna 19 leiki og tapa aðeins tveimur. Á eftir því koma Fjölnir með 34 stig og Valur með 32 stig en bæði lið geta mest náð 38 stigum. Auðvelt er að bóka sigur Hattarmanna því Ármann er langlélegasta liðið í 1. deildinni. Það er búið að tapa öllum 22 leikjum sínum mjög stórt og er rótfast við botn deildarinnar án stiga. Liðin mættust síðast tvo daga í röð um miðjan janúar þegar Ármann gerði sér ferð austur en þá unnu heimamenn 106-79 á föstudegi og 102-55 á laugardegi. Það er því fátt ef nokkuð sem kemur í veg fyrir endurkomu Hattar í Domino´s-deildina í kvöld. Höttur hafnaði í neðsta sæti efstu deildarinnar á síðustu leiktíð með aðeins sex stig eins og FSu og féll niður um deild eftir eins árs dvöl á meðal þeirra bestu. Liðið hélt einum sínum besta manni, Mirko Stefáni Virijevic, og bætti við sig Ragnari Gerald Albertssyni sem hefur spilað mjög vel. Þá er liðið með frábæran bandarískan leikmann, Aaron Moss, sem er að skora 24 stig að meðaltali í leik og gefa níu stoðsendingar. Margir áhugamenn um Domino´s-deildina munu fagna endurkomu þjálfarans Viðars Arnar Hafsteinssonar í deild þeirra bestu á nýjan leik en hann varð algjör stjarna fyrir frábær svör í viðtölum á síðustu leiktíð. Viðar er ekki nema 31 árs gamall og fínasta skytta en hann dró fram skóna á ný til að spila með liðinu í 1. deildinni. Hann er að skora átta stig að meðatali í leik á tæpum 17 mínútum en hann hefur hitt úr 33 prósent skota sinna fyrir utan teiginn.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira