Óli Björn telur lífeyrissjóðina of fyrirferðarmikla Heimir Már Pétursson skrifar 22. mars 2017 20:00
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins lýsti áhyggjum yfir því á Alþingi í dag að lífeyrissjóðir landsins væru orðnir of fyrirferðarmiklir í atvinnulífinu. Fjármálaráðherra segir oft þrýst á sjóðina að niðurgreiða þjóðþrifaverkefni en þeirra meginhlutverk eigi að vera að ávaxta sig vel og tryggja félögum sínum góðan lífeyri. Umsvif lífeyrissjóðanna í íslensku atvinnulífi komu til sérstakrar umræðu á Alþingi í dag. Enda eiga sjóðirnir samanlagt um 3.500 milljarða króna og um 40 prósent af öllum hlutabréfum í landinu. Það má því segja að lífeyrissjóðirnir séu eins og Frón kexið í auglýsingunni; þeir koma við sögu í lífi landsmanna á hverjum degi. Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði Íslendinga eiga lífeyriskerfi sem væri öfundsvert og með sönnu fjöregg landsmanna. Á næstu tólf til fimmtán árum muni eignir lífeyrissjóðanna að öllum líkindum tvöfaldast og verða um 7000 milljarðar króna. „Það er varla til sú hugmynd hér að verkefnum í íslensku atvinnulífi eða í uppbyggingu innviða öðruvísi en lífeyrissjóðirnir séu nefndir þar á nafn. Og talið að þangað sé fjármagnið helst að sækja,“ sagði Óli Björn. Hann rifjaði upp að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hafi nýlega lýst yfir að hann hefði áhyggjur af því að lífeyrissjóðirnir væru eftirvill orðnir of fyrirferðarmiklir í atvinnulífinu. Þetta væru réttmætar áhyggjur. „Lífeyrissjóðirnir eru komnir með ráðandi stöðu í íslensku atvinulífi. Sú hætta er vissulega fyrir hendi að við séum að horfa upp á það að völdin séu að safnast á fárra hendur. Þar sem haldið verður um taumana af fámennum hópi manna. Valdataumana allt frá bönkum til matvöruverslana frá fjölmiðlum til flugfélaga, fjarskiptum til sjávarútvegs og svo framvegis,“ sagði Óli Björn. Valddreifing væri ekki mikil innan lífeyrissjóðanna en flestir vildu fá að velja sér lífeyrissjóð og hafa áhrif á starfsemi þeirra. Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra tók undir að gott væri að fólk gæti valið sér lífeyrissjóð. Það myndi auka á samkeppni þeirra og ávöxtun. En oft væri sett fram krafa um að sjóðirnir niðurgreiddu ýmsa þjóðþrifastarfsemi. „Þá er verið að færa fjármuni frá sjóðfélögum. Fjármuni sem sjóðunum ber að ávaxta með sem allra bestum hætti. Þá eru þeir færðir til óskyldra verkefna. Ábyrgð lífeyrissjóðanna er fyrst og fremst sú að greiða sem bestan lífeyri og til þess þurfa þeir að ávaxta sjóði sína vel,“ sagði Benedikt Jóhannesson.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira